Árdís Hulda ráðin deildarstjóri Sjúkrahótels
7. október 2026
Árdís Hulda Eiríksdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri Sjúkrahótels Landspítala.

Árdís Hulda Eiríksdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri Sjúkrahótels Landspítala
Árdís er hjúkrunarfræðingur og reynslumikill stjórnandi með rúmlega 28 ára reynslu úr heilbrigðisþjónustu og framhaldsmenntun á sviði opinberrar stjórnsýslu. Hún hefur síðastliðin 13 ár verið forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem hún hefur meðal annars borið ábyrgð á rekstri, mannauðsmálum, gæðastarfi, breytingastjórnun og þróun þjónustu. Hún hefur jafnframt mikla reynslu af því að byggja upp starfsemi og teymi. Árdís leggur áherslu á traust, góð samskipti og virka þátttöku starfsfólks í þróun þjónustunnar.
„Ég hlakka mikið til að takast á við þetta nýja og spennandi verkefni með frábæru starfsfólki Sjúkrahótelsins, þar sem fagmennska og góð hótelupplifun fara saman. Ég mun leggja mitt af mörkum til að efla gæði og skapa fallegt og notalegt umhverfi þar sem gestir finna fyrir öryggi, hlýju og vellíðan og starfsfólk fær tækifæri til að blómstra í starfi.“
