Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Anna Guðrún Viðarsdóttir ráðin deildarstjóri í ónæmisfræði

20. mars 2026

Anna Guðrún Viðarsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri í ónæmisfræði við Landspítala.

Anna Guðrún er lífeindafræðingur að mennt og útskrifaðist frá Tækniskóla Íslands haustið 1987. Sérgreinar hennar í náminu voru ónæmis- og sýklafræði og gerði hún lokaritgerð sína á ónæmisfræðideildinni. Hún hóf störf á deildinni strax að loknu námi og hefur starfað þar síðan. Hún hefur starfað sem yfirlífeindafræðingur frá árinu 1998 og býr því yfir áratugalangri reynslu og þekkingu á starfsemi deildarinnar.

„Það hefur verið mér sönn ánægja að starfa á ónæmisfræðideildinni í mörg ár með frábæru samstarfsfólki og taka þátt í því starfi sem þar fer fram á sviði þjónusturannsókna, klínískrar vinnu og kennslu og vísinda. Það hefur orðið mikil breyting og framþróun á þessum árum á þeim þjónustuprófum sem deildin býður upp á. Ég hlakka til að halda áfram þeirri vinnu og markmiði deildarinnar að hafa þjónustu okkar sem besta.“