Andri Traustason ráðinn yfirlæknir í meinafræði
3. mars 2026
Andri Traustason hefur verið ráðinn í starf yfirlæknis í meinafræði við Landspítala.

Andri er sérfræðingur í réttarlæknisfræði. Hann útskrifaðist sem læknir frá Medical University of Debrecen í Ungverjalandi vorið 2012 og lauk sérnámi í réttarlæknisfræði í Svíþjóð haustið 2023. Undanfarin ár hefur hann starfað sem réttarlæknir á meinafræðideild og þekkir því starfsemi deildarinnar vel. Þar áður starfaði hann sem deildarlæknir á deildinni á árunum 2014–2015.
„Undir hatti meinafræðideildarinnar má finna þrjár undirdeildir sem nauðsynlegar eru fyrir grunnþjónustu og eðlilega starfsemi bæði heilbrigðiskerfisins sem og réttarkerfisins; nefnilega meinafræði, sameindameinafræði og réttarlæknisfræði. Að fá þann heiður að leiða og vinna með því frábæra starfsfólki sem vinnur á meinafræðideildinni að þeim margvíslegu og mjög áhugaverðu verkefnum sem deildirnar sem hana skipa takast á við er afskaplega ánægjulegt. Ég hlakka til að takast á við þær áskoranir og þau verkefni sem fylgja því að vera yfirmaður þessarar rúmlega hundrað ára gömlu deildar með virðingu og vinsemd.“
