Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Akureyrarklíníkin með móttöku á Landspítala

1. apríl 2026

Tveir starfsmenn Akureyrarklíníkurinnar, þjónustumiðstöðvar fyrir einstaklinga með ME-sjúkdóminn eða langvinnt covid, voru nýverið með móttöku á göngudeild ónæmisfræðideildar Landspítala.

Akureyrarklíníkin er samvinnuverkefni Sjúkrahússins á Akureyri og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og hefur samstarf við ónæmisfræðideildina lengi verið í undirbúningi en þótt klíníkin sé staðsett fyrir norðan þá starfar hún á landsvísu.

Áætlað er að hér á landi séu eitt til tvö þúsund einstaklingar með ME-sjúkdóminn en hann er sagður vangreindur. Þá er talið að á bilinu 1-5% þeirra sem smituðust af covid hafi þróað með sér langvarandi sjúkdómseinkenni sem líkjast einkennum ME-sjúkdómsins.

Í myndbandinu er rætt við Friðbjörn Sigurðsson, lækni á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Dagbjörtu Bjarnadóttur, hjúkrunarfræðing og teymisstjóra Akureyrarklíníkurinnar, Sigurveigu Þ. Sigurðardóttur, yfirlækni á ofnæmisgöngudeild Landspítala, og Kristján Erlendsson, sérfræðilækni á Landspítala.