Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Afgerandi traust til Landspítala

17. mars 2026

Forstjórapistill Runólfs Pálssonar úr nýjasta tölublaði Spítalapúlsins.

Frá bráðamóttökunni í Fossvogi þar sem örtröð ríkir alla daga.

Það má með sanni segja að árið fari af stað með látum því umfjöllun um spítalann hefur verið fyrirferðarmikil á vettvangi fjölmiðla og fullt tilefni til. Við höfum tekist á við erfiðar áskoranir á liðnum tveimur mánuðum og raunar mun lengur. Örtröð ríkir alla daga á bráðamóttökunni í Fossvogi og viðbragðsáætlun sem beinist að dreifingu álags með yfirlögnum á allar bráðalegudeildir hefur leitt til þess að spítalinn hefur verið á hæsta viðbragðsstigi innlagna í meira en ár. Í ofanálag greindust átta starfsmenn á bráðamóttökunni með berklasmit sem hefur í för með sér íþyngjandi lyfjameðferð til að koma í veg fyrir berklaveiki síðar á ævinni. Til viðbótar við starfsfólkið sem í hlut á er þetta óneitanlega verulegt áfall fyrir okkar dýrmæta starfsmannahóp. Þessi þrautarganga er til komin vegna þeirrar stöðu sem spítalinn stendur frammi fyrir og stafar af ófullnægjandi fjölda legurýma og verulegum fjölda færniskertra aldraðra einstaklinga sem ekki er hægt að útskrifa að lokinni meðferð vegna skorts á hjúkrunarrýmum. Háskólasjúkrahús Íslendinga líður fyrir ófullnægjandi framboð úrræða utan spítalans og þegar það gerist er hætt við bresti í þjónustu við veika og slasaða þar sem þurft getur að fresta aðgerðum og mikilvægri meðferð. Að mínu mati ræður Landspítali ekki við nema 30-40 einstaklinga sem bíða á legudeildum eftir vistunarúrræði án þess að það komi niður á annarri þjónustu. Ástandið sem við búum við er óásættanlegt fyrir sjúklinga en einnig starfsfólk, því þeirra hugsjón beinist að skilvirkri þjónustu við þann veika og slasaða við fullnægjandi aðstæður. Er því með öllu óskiljanlegt að ríkt og gjöfult samfélag eins og okkar geti ekki tryggt kjarnaþjónustu sem þessa með skilvirkari hætti.

Þrátt fyrir þessa stöðu virðist almenningur bera víðtækt traust til Landspítala. Mæling á trausti til opinberra stofnana er gerð árlega og hefur síðustu ár verið stígandi í niðurstöðum spítalans sem mælist nú meðal þeirra stofnana sem almenningur ber mest traust til. Einnig kemur fram að þekking á starfsemi spítalans er mikil meðal almennings og má því ætla að niðurstaðan sé áreiðanleg. Þá kemur Landspítali umtalsvert betur út en heilbrigðiskerfið í heild. Þessi niðurstaða kemur mér ekki á óvart því þrátt fyrir þá dökku mynd sem dregin hefur verið upp af bráðaþjónustu spítalans er þjónustan jafnan framúrskarandi.

Þegar kastljósinu er beint að starfsfólki Landspítala birtist annars vegar seigla og þrautseigja við störf sem eru hlaðin álagi við óviðunandi aðstæður og hins vegar fagmennska sem endurspeglast í trausti almennings til starfseminnar. Þetta minnir okkur á að mannauðurinn er hjarta spítalans. Mér er afar umhugað um að aðstæður gefi okkur kost á að hlúa betur að okkar dýrmæta starfsfólki, í það minnsta á svipaðan hátt og gert er á öðrum opinberum stofnunum. Ítrekað og viðvarandi aðhald í rekstri hefur þó hamlað slíkum áformum og virðast ekki vera tækifæri til breytinga á yfirstandandi ári. Fjárveitingum er forgangsraðað í þágu klínísku þjónustunnar sem ætíð er í fyrirrúmi. Það er auðvitað óumdeilt en engu að síður verður sú staða sem hér er lýst að teljast umhugsunarverð. Afstaða mín hefur verið sú að réttast væri að samræma sem mest risnu og hlunnindi sem opinberar stofnanir veita sínu starfsfólki.

Þrátt fyrir neikvæða umræðu búum við Íslendingar við öflugt heilbrigðiskerfi í samanburði við flestar aðrar þjóðir. Verður það að teljast athyglisvert í ljósi smæðar okkar. Þetta breytir þó ekki því að á undanförnum árum hefur fólk í vaxandi mæli upplifað bresti í heilbrigðisþjónustunni, einkum hvað snertir aðgengi að þjónustu. Því miður á þetta ekki síst við viðkvæma hópa innan samfélags okkar. Þessi þróun varpar að mínu mati ljósi á helstu veikleika íslensku heilbrigðisþjónustunnar sem eru skortur á traustu skipulagi, verkaskiptingu milli stofnana og annarra þjónustueininga og yfirsýn yfir þjónustuúrræði. Viðkvæmir sjúklingahópar eiga ekki að upplifa sig afskipta innan heilbrigðisþjónustunnar heldur þarf að taka mið af aðstæðum fólks og beina þeim með traustum hætti í viðeigandi úrræði. Ég bind vonir við að heildarmynd heilbrigðiskerfisins taki jákvæðum breytingum á komandi misserum. Þær áskoranir sem hér eru reifaðar ættu að vera viðráðanlegar en nálgast þarf breytingarnar á samhentan máta með hagsmuni sjúklinga og samfélags að leiðarljósi.

---

Spítalapúlsinn má lesa í heild sinni hér.