Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Æfðu sig í æðaleggjaísetningu og barkaþræðingu

16. október 2026

Í dag er árlegur tækja- og símenntunardagur starfsfólks í skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu Landspítala og jafnframt alþjóðadagur svæfingar.

Umfangsmikil dagskrá var í morgun á skurðstofum, svæfingu, vöknun og gjörgæslu í Fossvogi og Hringbraut þar sem fram fór markviss þjálfun, fræðsla og kynning á nýjustu tækjum og búnaði.

Í meðfylgjandi myndbandi er rætt við Bergþóru Eyjólfsdóttur, deildarstjóra svæfingar á Hringbraut, og Martin Inga Sigurðsson, prófessor og yfirlækni svæfinga- og gjörgæslulækninga.