40 ár frá fyrstu opnu hjartaaðgerðinni á Íslandi
18. júní 2026
Málþing um hjartaskurðlækningar á Íslandi var haldið í Hringsal þann 15. júní sl. þar sem tímamót í þróun hjarta- og lungnaskurðþjónustu voru í brennidepli.

Á málþinginu var saga hjartaskurðlækninga rakin frá fyrstu opnu hjartaaðgerðinni á Íslandi árið 1986 til nútíma hjartaþjónustu. Fjallað var um þróun aðgerða síðustu áratugi, framfarir í meðferð og mikilvægi þverfaglegs samstarfs.
Einnig var fjallað um hjúkrun sjúklinga eftir brjóstholsaðgerðir. Þar var meðal annars kynnt starf hjúkrunarstýrðrar göngudeildar, sem hefur styrkt eftirfylgd, aukið öryggi sjúklinga og stuðlað að styttri legutíma.
Áhersla var lögð á markvissari fræðslu, skipulagða eftirfylgd og innleiðingu flýtibataferla sem hafa haft mikil áhrif á bataferli og þjónustu við sjúklinga.














