Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Velsældarþing 8. - 9. maí 2025

8. maí 2025

kl. 08:00 til 16:30

Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús

Merki

Embætti landlæknis skipuleggur Velsældarþing sem fram fer í Hörpu dagana 8. og 9. maí, 2025. Þingið er hluti af verkefninu JA PreventNCD sem er styrkt af Heilbrigðisáætlun Evrópusambandsins. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, er verndari þingsins og dr. Dóra G. Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis, er forseti og frumkvöðull þingsins.

Markmið Velsældarþingsins er að skapa alþjóðlegan vettvang fyrir umræður og samstarf milli stjórnmála, atvinnulífs, fræðasamfélags, sérfræðinga og almennings um uppbyggingu velsældarhagkerfis, þar sem áherslan er lögð á félagslega og umhverfislega þætti auk hinna efnahagslegu við mat á velsæld og lífsgæðum. Þessi nýja nálgun hefur á skömmum tíma hlotið mikla athygli og góðar undirtektir á alþjóðavísu. Hún snýst m.a. um að húsnæði, afkoma, vinnumarkaður, samfélag, menntun, umhverfi, borgaraleg þátttaka, heilsa, lífsánægja, öryggi samfélagsins og jafnvægi vinnu og einkalífs séu kjarnaþættir fyrir velsæld í merkingunni lífskjör, lífsgæði, framfarir, og velgengni samfélaga.

Dagskrá Velsældarþingsins, upplýsingar um fyrirlesara og skráningu á þingið má finna á heimasíðu þingsins: www.wellbeingeconomyforum.com

Frekari upplýsingar
Elín Hirst - elin.hirst@landlaeknir.is
Margrét Jóhannsdóttir - margret.johannsdottir@landlaeknir.is