Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Málþing um rannsóknir á sjálfsvígum. Samstarf háskóla og annarra stofnana

16. mars 2026

09:15 til 12:30

Háskólinn á Akureyri, Norðurslóð 2, 600 Akureyri (M102 og Zoom)

Lífsbrú. Miðstöð sjálfsvígsforvarna. Kennimark

Á málþinginu koma saman fræðimenn og fagfólk til að kynna nýjustu sjálfsvígsrannsóknir ásamt fulltrúum þjónustu- og samfélagsúrræða sem sinna sjálfsvígsforvörnum á Íslandi.

Á málþinginu verður kynnt samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, embættis landlæknis og Landspítala, um stofnun sameiginlegs rannsóknarvettvangs. Samstarfsaðilar munu skrifa undir viljayfirlýsingu vegna samstarfsins á málþinginu.

Þátttaka embættis landlæknis

Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis vinnur markvisst að því að fækka sjálfsvígum á Íslandi. Lífsbrú tekur þátt í samstarfsverkefni háskólanna, Landspítala háskólasjúkrahúss og nýrrar rannsóknarmiðstöðvar sjálfsvígsforvarna um rannsóknir á sviði sjálfsvígsforvarna.

Samstarf og samvinna um rannsóknir á áhættuþáttum sjálfsvíga eru mikilvægar í forvörnum, íhlutunum og stuðningi eftir sjálfsvíg en aðgerð 1.1 í aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi innifelur einmitt slíkt samstarf.