Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Málþing – sjálfsvígsforvarnir

14. september 2026

13:00 til 15:30

Hringsalur á Barnaspítala Hringsins, við Hringbraut, 101 Reykjavík

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum.

Málþingið er haldið á vegum Lífsbrúar - miðstöðvar sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis og Landspítala. Málþingið er ætlað heilbrigðisstarfsfólki og öðrum sem áhuga hafa á sjálfsvígsforvörnum.

Dagskrá

  • 13:00–14:00 - Sjálfsvíg skjólstæðings: Áhrif á fagfólk og stuðningur og viðbrögð í kjölfar sjálfsvígs. Dr. Regina Seibl starfar sem sérfræðingur hjá Pro Mente Tirol og PSZ Tirol (miðstöð fyrir bráða- og áfallaþjónustu) í Innsbruck í Austurríki. Hún sér m.a um kennslu í stuðningi eftir sjálfsvíg og geðrænni skyndihjálp (Mental Health First Aid). Hún á sæti í sérfræðiráði SUPRA (Suicide Prevention Austria) og leiðir vinnuhóp samtakanna um stuðning í kjölfar sjálfsvígs

  • 14:00-14:15 - Viðbragðsáætlun fyrir sjúklinga í sjálfsvígshættu: Þjálfun starfsmanna og innleiðing í geðþjónustunni. Dr. Berglind Guðmundsdóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði hjá Landspítala og prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands

  • 14:15-14:30 - Díalektísk atferlismeðferð. Kristín Inga Grímsdóttir sérfræðingur í barna- og unglingageðhjúkrun

  • 14:30-14:50 - Hlé

  • 14:50–15:05 - Að lifa af er aðeins byrjunin. Sr. Sunna Dóra Möller, prestur í Langholtskirkju

  • 15:05–15:20 - Sjálfsvígsforvarnir á Íslandi: Hvar stöndum við og hvert stefnum við? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir verkefnastjóri hjá Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis

Skráning á málþingið er nauðsynleg en aðgangur er ókeypis meðan húsrúm leyfir.

Málþingið verður tekið upp og hlekkur gerður aðgengilegur eftir málþingið.