Kyrrðarstund í Bústaðarkirkju
10. september 2026
20:00 til 22:00
Bústaðakirkja, Tunguvegi 25, 108 Reykjavík

Kyrrðarstund verður haldin í Bústaðarkirkju þann 10. september kl. 20:00, á alþjóðadegi sjálfsvígsforvarna, þar sem skapað verður hlýlegt rými til samveru, minningar og íhugunar.
Dagskrá
Séra Sigríður Kristín Helgadóttir býður gesti velkomna
Eva Skarpaas flytur opnunarávarp og kynnir dagskrá
Vigfús Bjarni Albertsson og Eva Skarpaas flytja hugvekjur
Guðmundur Pétursson og Ragnheiður Gröndal flytja tónlist
Kveikt verður á kertum til minningar um ástvini
Kór tónlistarskóla FÍH syngur undir stjórn Unu Stefánsdóttur
Slökkviliðið höfuðborgarsvæðisins stendur heiðursvörð
Að kyrrðarstundinni lokinni verður boðið upp á kaffi og veitingar og gestum gefst kostur á að eiga saman rólega samverustund.
Öll hjartanlega velkomin💛