Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

112-dagurinn 2026

11. febrúar 2026

15:00 til 18:00

Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi

Einn einn tveir dagurinn. Merki

Neyðarlínan heldur upp á 112-daginn þann 11. febrúar á hverju ári því að dagsetningin 11. 2 minnir okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 112. Það er mikilvægt að minna á þetta númer af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð.

Dagskrá

  • Kl. 15.00-18.00 Neyðarverðir frá Neyðarlínunni verða á staðnum ásamt fulltrúum frá Rauða krossinum og Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Einnig verður viðvera á staðnum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, samfélagslögreglunni, Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna og fleirum.

  • Kl. 16.00-17.00 Björnis brunabangsi kíkir við

  • Kl. 17.00-17:30

    • Ávarp dómsmálaráðherra

    • Framkvæmdarstjóri Neyðarlínu, Jón Svanberg Hjartarson veitir viðurkenningar

    • Verðlaun veitt í eldvarnargetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna