Fara beint í efnið

Vísindagrein um hvort nota eigi joðbætt salt í brauð til að bæta joðhag landsmanna

9. febrúar 2023

Nýlega birtist vísindagrein í Læknablaðinu sem fjallar um hver áhrif þess væru að nota joðbætt salt í brauð til að bæta joðhag landsmanna.

Gróft brauð

Joð er mikilvægt steinefni sem við fáum í snefilmagni úr fæðunni. Joð er nauðsynlegt fyrir myndun skjaldkirtilshormóna sem gegna mikilvægu hlutverki í líkamanum, meðal annars á meðgöngu fyrir eðlilegan vöxt og þroska fósturs. Við fáum helst joð úr mjólkurvörum (fyrir utan ost) og mögrum fiski eins og ýsu og þorski. Ófullnægjandi joðhagur greindist nýlega hérlendis meðal barnshafandi kvenna og joðneysla þátttakenda í landskönnun á mataræði á Íslandi frá árunum 2019-2021 var undir ráðlögðum dagskammti hjá 80% kvenna og 60% karla.

Nýlega birtist vísindagrein í Læknablaðinu sem fjallar um hver áhrif þess væru að nota joðbætt salt í brauð til að bæta joðhag landsmanna. Notuð voru gögn úr landskönnun á mataræði og úr könnun á mataræði tveggja ára barna á Íslandi. Niðurstöður útreikninga sýna að notkun joðbætts salts í brauð sem svarar til 20 µg af joði í 100 grömmum af brauði tilbúnu til neyslu virðist örugg fyrir ung börn. Þessi viðbætti joðstyrkur í brauðum myndi þó ekki duga til að tryggja fullnægjandi joðneyslu allra fullorðinna, sé miðað við núverandi mataræði landsmanna.

Höfundar greinarinnar eru fræðimenn frá Háskóla Íslands, embætti landlæknis og Matvælastofnun. Fyrsti höfundur greinarinnar er Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í næringarfræði.

Skoða má greinina á vef Læknablaðsins.

Nánari upplýsingar veita verkefnisstjórar næringar:

Jóhanna Eyrún Torfadóttir
johanna.e.torfadottir@landlaeknir.is

Hólmfríður Þorgeirsdóttir
holmfridur.thorgeirsdottir@landlaeknir.is