Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Tilkynning um breytta stjórnsýsluframkvæmd - sérfræðileyfi í félagsráðgjöf

4. mars 2026

Embætti landlæknis tilkynnir hér með um breytta stjórnsýsluframkvæmd við veitingu sérfræðileyfa félagsráðgjafa.

Fjallað er um skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfis í félagsráðgjöf í 6. gr. reglugerðar nr. 1088/2012 um menntun, réttindi og skyldur félagsráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi. Samkvæmt því ákvæði skal sérfræðinám umsækjanda vera skilgreint innan þess sérsviðs sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til. Þá skal umsækjandi hafa lokið meistara- eða doktorsprófi í félagsráðgjöf á viðkomandi sérsviði eða sambærilegu framhaldsnámi frá viðurkenndum háskóla.

Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis félagsráðgjafa er samkvæmt framangreindri reglugerð að umsækjandi hafi lokið MA-prófi í félagsráðgjöf frá félagsráðgjafadeild félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Fyrir gildistöku framangreindrar reglugerðar voru skilyrði starfsleyfis félagsráðgjafa önnur, ýmist var skilyrði að hafa lokið félagsráðgjafaprófi eða BA-prófi ásamt eins árs starfsréttindanámi frá Háskóla Íslands. Félagsráðgjöfum, sem luku eldra námi til starfsleyfis félagsráðgjafa, og sem hafa bætt við það nám sitt tilskyldum einingum til að ljúka meistaranámi í félagsráðgjöf, hafa fram til þessa verið taldir uppfylla framangreind skilyrði 6. gr. reglugerðarinnar fyrir útgáfu sérfræðileyfis í félagsráðgjöf er lúta að námi.

Við gagngera skoðun á skilyrðum sérfræðileyfa, meðal annars í tengslum við endurskoðun ofangreindrar reglugerðar, sem og með vísan til nýlegra úrskurða heilbrigðisráðuneytisins hefur embætti landlæknis komist að þeirri niðurstöðu að meistaranám í félagsráðgjöf, sem nú er það nám sem veitir rétt til starfsleyfis félagsráðgjafa, geti ekki talist uppfylla það skilyrði 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar að teljast skilgreint sérfræðinám innan sérsviðs félagsráðgjafar, þrátt fyrir að félagsráðgjafi hafi bætt við fyrra nám sitt tilskyldum einingum til að ljúka meistaragráðunni.

Með vísan til framangreinds tilkynnir embætti landlæknis að hér eftir verður gerð sú krafa að umsækjandi hafi bætt við sig fullu meistara- eða doktorsnámi, eða sambærilegu námi, á sérsviði félagsráðgjafar, og að það nám sem umsækjandi byggir umsókn sína um sérfræðileyfi á, hafi hafist að loknu því námi sem veitti viðkomandi rétt til starfsleyfis. Eftir sem áður þurfa önnur skilyrði 6. gr. fyrir veitingu sérfræðileyfis jafnframt að vera uppfyllt.

Samkvæmt framangreindri reglugerð þarf félagsráðgjafi að hafa starfað á því sérsviði sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til í tvö ár í fullu starfi að loknu sérfræðinámi. Til að veita þeim félagsráðgjöfum, sem þegar hafa hafið meistaranám í félagsráðgjöf, sem viðbót við fyrra nám í félagsráðgjöf, hæfilegt svigrúm og tækifæri til að fá útgefið sérfræðileyfi á grundvelli námsins, verða umsóknir þeirra um sérfræðileyfi afgreiddar í samræmi við eldri framkvæmd fram til 31. desember 2029.

Starfsleyfateymi