Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Talnabrunnur – 7. tölublað 2026. Svefn, hreyfing og næring fullorðinna

20. október 2026

Nýtt tölublað Talnabrunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, hefur verið gefið út.

Nýtt tölublað Talnabrunns gefur yfirlit yfir svefn, hreyfingu, kyrrsetu, næringu og aðra heilsutengda þætti meðal fullorðinna landsmanna. Allt eru þetta mikilvægir þættir í að efla heilsu og vellíðan.

Niðurstöðurnar benda til þess að margir hafi tileinkað sér heilsusamlegar venjur, meðal annars hvað varðar hreyfingu og svefn. Kyrrseta er þó algeng og er svigrúm til að bæta daglegar hreyfivenjur.

Greining gagna sýnir einnig að mataræði landsmanna er á margan hátt fjölbreytt en að áfram má auka neyslu á ávöxtum og grænmeti. Þá hefur inntaka D-vítamíns sem bætiefnis aukist en hana mætti auka enn meira. Neysla orkudrykkja er algeng og hefur aukist mikið meðal yngri hópa.

Greinarhöfundar eru Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Guðríður Hlíf Sigfúsdóttir, Ellen Alma Tryggvadóttir, Jóhanna Eyrún Torfadóttir og Hólmfríður Þorgeirsdóttir.