Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Talnabrunnur - 5 tölublað 2026

24. júní 2026

Nýtt tölublað Talnabrunns fjallar um þróun mælinga á andlegri heilsu, svefni, streitu, einmanaleika, hamingju og velsæld fullorðinna á Íslandi undanfarinn áratug.

Niðurstöður sýna að flestar mælingar hafa ýmist staðið í stað eða þróast til verri vegar á tímabilinu. Um 70% fullorðinna mátu andlega heilsu sína góða eða mjög góða árið 2025. Hlutfall kvenna í þeim hópi hefur lækkað en hlutfall karla er óbreytt frá 2016. Mest fækkaði í hópi þeirra sem meta andlega heilsu sína góða meðal ungmenna á aldrinum 18-24 ára og þeirra sem eiga erfitt með að ná endum saman. Tæplega 70% fullorðinna fá að jafnaði nægan svefn og hefur hlutfall karla aukist en ekki orðið teljandi breytingar á meðal kvenna. Streita og einmanaleiki hafa aukist og dregið hefur úr hamingju. Aukning á hlutfalli þeirra sem upplifa mikla streitu í daglegu lífi skýrist fyrst og fremst af aukinni streitu meðal kvenna.

Mikilvægur munur kemur fram eftir aldri þar sem mælingar sem tengjast líðan eru jafnan lakastar meðal yngri aldurshópa en batna með hækkandi aldri. Eldra fólk greinir oftar frá betri andlegri heilsu, meiri hamingju og velsæld, minni streitu, minni fjárhagserfiðleikum og minni einmanaleika.

Niðurstöðurnar sýna einnig skýran mun eftir fjárhagsstöðu. Þau sem eiga erfitt með að ná endum saman koma verr út á öllum mælikvörðum og staða þeirra hefur versnað meira en annarra. Þótt niðurstöður úr vöktun sýni ekki fjölgun í hópi þeirra sem glíma við fjárhagserfiðleika hefur staða þeirra versnað og munur eftir fjárhagsstöðu aukist.

Þróun mælivarða sem snerta líðan fullorðinna undanfarinn áratug, einkum ungs fólks, kvenna og þeirra sem búa við fjárhagslega erfiðleika, kallar á markvissari áherslu á geðrækt í samfélaginu. Mikilvægt er að stjórnvöld tileinki sér hugmyndafræði um geðheilsu í allri stefnumótun (Mental Health in All Policies) enda liggja áhrifaþættir geðheilsu að mestu utan heilbrigðiskerfisins. Jafnframt er mikilvægt að bregðast við merkjum um vaxandi ójöfnuð til heilsu og vellíðanar í íslensku samfélagi og tryggja greitt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu óháð fjárhagslegri stöðu.

Frekari upplýsingar
Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri geðræktar
sigrun.danielsdottir@landlaeknir.is