Skýrsla vinnuhóps landlæknis um þjónustu við sjúklinga með POTS, ME, langvinnt COVID og skylda sjúkdóma
22. október 2026
Skýrsla vinnuhóps landlæknis um þjónustu við sjúklinga með POTS, ME, langvinnt COVID og skylda sjúkdóma er birt í dag. Um er að ræða afrakstur vinnu fjölmenns hóps fagfólks og fulltrúa sjúklingasamtaka sem staðið hefur yfir frá hausti 2025.

Heilbrigðisráðuneytið fól landlækni í ágúst 2025 að stofna og leiða starfshóp um þjónustu við sjúklinga með ME, langvinnt COVID, POTS og skylda sjúkdóma.
María Heimisdóttir landlæknir gat því miður ekki leitt starf hópsins eða starfað með honum nema fyrstu vikurnar sökum veikinda. Í fjarveru hennar fól settur landlæknir fulltrúum hópsins að halda vinnunni áfram. Friðbjörn Sigurðsson læknir tók fljótlega við forystu hópsins.
Landlæknir tók formlega við skýrslu hópsins 22. september síðastliðinn og hefur sent heilbrigðisráðuneytinu svör og tillögur vegna þeirra atriða sem ráðuneytið óskaði svara við.
Um er að ræða nokkurt tímamótaverkefni þar sem fulltrúar sjúklingasamtaka komu að starfinu strax frá upphafi. Var framlag þeirra ómetanlegt, meðal annars hvað varðar mat á klínískum leiðbeiningum til notkunar í þjónustu við þessa sjúklingahópa.
Auk þeirra atriða sem ráðuneytið óskaði sérstaklega eftir að hópurinn skoðaði bættu einstakir meðlimir hópsins við köflum um þau atriði sem þeir töldu mikilvægt að koma á framfæri. Það efni mun eflaust nýtast vel í frekari umræðu og þróun.