Fara beint í efnið

Nóróveira olli hópsýkingum á hálendi Suðurlands

27. ágúst 2024

Nóróveira hefur greinst í sýnum frá fólki sem veiktist af magakveisu á fjölsóttum ferðamannastöðum á hálendinu nýverið. Alls hefur nóróveira greinst hjá níu einstaklingum sem höfðu viðkomu á Rjúpnavöllum og hjá tveimur skólabörnum sem meðal annars gistu í Emstrum.

Mynd. Gönguhópur

Allmargir hópar ferðamanna hafa veikst af magakveisu síðustu vikur, en flestir voru á ferð um eða við Landmannaleið (Landmannalaugar, Landmannahellir, Áfangagil, Hólaskógur, Rjúpnavellir) eða í gönguferð eftir „Laugaveginum“ (Landmannalaugar, Hrafntinnusker, Álftavatn, Hvanngil, Emstrur, Þórsmörk (Básar)). Vonir stóðu til að þessar hópsýkingar væru yfirstaðnar en í gær bárust fréttir um tvo veika einstaklinga til viðbótar í Hrafntinnuskeri.

Staðfest hefur verið að yfir sextíu manns veiktust í tengslum við ferðalag eftir Landmannaleið og að yfir fjörutíu hafa veikst nýlega á Laugaveginum. Fjöldi þeirra sem veiktist er þó líklega töluvert hærri þar sem fæstir ferðamenn tilkynna veikindi sín til yfirvalda. Erfitt er að meta fjölda ferðamanna á þessum slóðum um hásumarið en líklega eru hundruð manna á ferðinni á Laugaveginum á hverjum tíma.

Sóttvarnalæknir birti nýverið frétt um einkenni nóróveiru, helstu smitleiðir og fyrirbyggjandi aðgerðir. Nóróveira er afar smitandi og því er mikilvægt grípa strax til aðgerða til þess að hefta útbreiðslu veirunnar milli manna og út í umhverfið. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur haft samband við staðarhaldara í skálum á ofangreindum ferðamannastöðum. Gefin hafa verið út tilmæli um að sjóða allt neysluvatn og að þrífa alla yfirborðsfleti og búnað í skálunum með viðeigandi aðferðum.

Heilbrigðiseftirlitið hefur einnig tekið sýni til rannsókna á neysluvatni í skálum á ofangreindum hálendisstöðum til þess að ganga úr skugga um að vatnsból/neysluvatn séu ekki menguð af saurgerlum eða mögulega nóróveiru. Tekin hafa verið sýni úr eftirfarandi skálum: Rjúpnavöllum, Hólaskógi, Áfangagili, Landmannahelli, Landmannalaugum, Hrafntinnuskeri og Álftavatni. Áform eru um sýnatökur í Hvanngili, Emstrum og Básum.

Neysluvatnssýni eru rannsökuð með tilliti til saurgerlamengunar hérlendis en senda þarf vatnssýni á rannsóknastofu erlendis til mælinga á nóróveiru. Niðurstöður nóróveirumælinga eru ekki komnar. Þegar hefur greinst saurgerlamengun í neysluvatni á Rjúpnavöllum en ekki er vitað um veikindi vegna saurgerla. Fyrir aðra skála eru niðurstöður annaðhvort neikvæðar eða eru væntanlegar á næstu dögum. Heilbrigðiseftirlitið heldur utan um sýnatökur og niðurstöður þeirra.

Að lokum skal tekið fram að rannsókn þessara hópsmita stendur enn yfir og ekki er hægt að fullyrða um uppruna smits, í neysluvatni eða annars staðar.

Viðbót 27.08.2024

Niðurstöður frá erlendri rannsóknastofu staðfesta að ekki greindist nóróveira í neysluvatnssýnum sem tekin voru á Rjúpnavöllum og Landmannahelli.

Sóttvarnalæknir