Málþing á degi sjúklingaöryggis - Öryggi sjúklinga með langvinna sjúkdóma
16. september 2026
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur útnefnt 17. september ár hvert sem alþjóðlegan dag sjúklingaöryggis.

Tilgangurinn er að auka vitund um öryggi sjúklinga og hvetja til almennrar samstöðu um að efla öryggi í heilbrigðisþjónustu. Öryggi snýst um það að sjúklingar hljóti ekki skaða af þeirri þjónustu sem ætluð er til að bæta heilsu þeirra og lífsgæði. Þema ársins að þessu sinni er öryggi sjúklinga með ósmitbæra sjúkdóma en það eru sjúkdómar sem smitast ekki milli fólks og eru yfirleitt langvinnir.
Embætti landlæknis stendur af þessu tilefni fyrir málþingi um sjúklingaöryggi í húsakynnum embættis landlæknis, Katrínartúni 2, þann 17. september kl. 13-16. Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Málþinginu er einnig streymt.
Frekari upplýsingar,
Hrefna Þengilsdóttir, yfirlæknir á sviði eftirlits og gæða