Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Mænusótt nær horfin úr heiminum en baráttunni er ekki lokið

26. október 2026

Alþjóðlegur dagur gegn mænusótt (World Polio Day) var haldinn 24. október. Dagurinn minnir á þann mikla árangur sem náðst hefur í baráttunni gegn þessum alvarlega smitsjúkdómi, en jafnframt mikilvægi þess að halda áfram bólusetningum og vöktun þar til sjúkdómnum hefur verið útrýmt um allan heim. Í ár eru jafnframt liðin 70 ár frá því að bólusetningar gegn mænusótt hófust á Íslandi.

Mikill árangur á heimsvísu

Mænusótt (poliomyelitis), einnig nefnd lömunarveiki, er mjög smitandi veirusjúkdómur sem einkum leggst á börn yngri en fimm ára. Veiran berst aðallega með saurmengun, fjölgar sér í þörmum og getur borist þaðan í taugakerfið og valdið varanlegri lömun. Flestar sýkingar eru einkennalausar eða valda vægum veikindum, en um eitt af hverjum 200 smitum leiðir til óafturkræfrar lömunar. Meðal þeirra sem lamast deyja 5–10% vegna lömunar öndunarvöðva. Engin lækning er til við sjúkdómnum, en hægt er að koma í veg fyrir hann með bólusetningu.

Árið 1988 hófst alþjóðlegt átak um útrýmingu mænusóttar (Global Polio Eradication Initiative), meðal annars undir forystu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), Rotary International og UNICEF. Þá var áætlað að um 350.000 manns lömuðust árlega af völdum sjúkdómsins í yfir 125 löndum.

Síðan þá hefur tilfellum af völdum villtrar mænusóttarveiru fækkað um meira en 99,9%. Landlæg útbreiðsla hennar er nú aðeins í tveimur löndum, Afganistan og Pakistan. Samkvæmt upplýsingum frá alþjóðlega útrýmingarátakinu höfðu 48 tilfelli af völdum villtrar mænusóttarveiru verið tilkynnt í þessum löndum árið 2026, miðað við stöðuna 20. október.

Áskoranir eru enn til staðar

Þrátt fyrir þennan árangur er hættan ekki liðin hjá. Auk villtrar mænusóttarveiru hafa komið upp hópsýkingar af völdum afbrigða sem þróast hafa frá veikluðum veirum í bóluefni sem gefið er í munn (OPV, það bóluefni hefur ekki verið notað hérlendis). Slík afbrigði geta dreifst meðal óbólusettra og valdið lömun. Undanfarin ár hafa þau valdið hópsýkingum í nokkrum löndum, einkum í Afríku, og einnig greinst í frárennslisvatni í Evrópu.

Evrópusvæði WHO var lýst laust við landlæga útbreiðslu villtrar mænusóttarveiru árið 2002 og hefur haldið þeirri stöðu síðan. Í skýrslu WHO, sem birt var í júlí 2026, er þó lögð áhersla á að áfram þurfi að tryggja góða þátttöku í bólusetningum, öfluga vöktun og viðbúnað vegna mögulegs innflutnings veirunnar. Sérstakar áhyggjur eru af löndum þar sem bólusetningarþátttaka er ófullnægjandi.

Sjötíu ár frá upphafi bólusetninga á Íslandi

Mænusótt var áður alvarlegt lýðheilsuvandamál á Íslandi. Fyrsti stóri faraldurinn gekk yfir árið 1924 og nokkrir stórir faraldrar fylgdu í kjölfarið, sá síðasti árið 1955. Bólusetningar hófust árið 1956 og síðustu innlendu tilfellin greindust árið 1960. Síðasta tilfelli sem greindist hér á landi var innflutt árið 1963.

Á Íslandi hefur frá upphafi eingöngu verið notað óvirkjað bóluefni gegn mænusótt (IPV). Það veitir mjög góða vörn gegn alvarlegum veikindum og lömun. Mikilvægt er að viðhalda góðri þátttöku í almennum barnabólusetningum.

Í nýjasta áhættumati WHO fyrir Evrópu er Ísland metið í lítilli hættu á viðvarandi útbreiðslu mænusóttarveiru ef hún bærist til landsins. Bæði vöktun og ónæmi þjóðarinnar eru metin góð. Slíkur árangur byggist á áratugalöngu bólusetningarstarfi og öflugu heilbrigðiskerfi.

Sameiginlegt markmið um útrýmingu

Saga mænusóttar sýnir hversu miklum árangri er hægt að ná með bólusetningum, vísindum og alþjóðlegu samstarfi. En meðan veiran heldur áfram að berast milli manna einhvers staðar í heiminum er hætta á að hún berist til annarra landa.

Sóttvarnalæknir hvetur foreldra og forráðamenn til að tryggja að börn þeirra fái bólusetningar samkvæmt íslenskri bólusetningaráætlun. Jafnframt er mikilvægt að viðhalda öflugri vöktun og alþjóðlegu samstarfi.

Markmiðið er innan seilingar, en baráttunni lýkur ekki fyrr en mænusótt hefur verið útrýmt alls staðar í heiminum.

Sóttvarnalæknir

Nánari upplýsingar