Leið að betri líðan – ný handbók fyrir fólk eftir sjálfsvígstilraun
2. október 2026
Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis hefur gefið út nýja handbók sem ætluð er til stuðnings eftir sjálfsvígstilraun. Handbókin getur verið hjálpleg fyrir þann sem gerir tilraunina en einnig fyrir fagfólk og ástvini.

Tíminn eftir sjálfsvígstilraun getur verið þungur og einkennst af óvissu, sterkum tilfinningum og mörgum spurningum um hvað taki við. Handbókin er hugsuð sem leiðarvísir og stuðningur í næstu skrefum, þar sem hver og einn getur valið það sem hentar og farið á sínum hraða.
Í handbókinni er meðal annars fjallað um mikilvægi þess að leita sér hjálpar strax, fyrstu dagana eftir sjálfsvígstilraun, stuðning frá fólkinu í kring og frá fagfólki, endurkomu til vinnu eða náms, hvað hægt er að gera ef sjálfsvígshugsanir vakna á ný, öryggisáætlun, sjálfsumönnun og framtíðina. Einnig er að finna yfirlit yfir stuðningsúrræði, jafningjastuðning, bráðaaðstoð og hjálparsíma.
Meginboðskapur handbókarinnar er að bati taki tíma og gerist oft í litlum skrefum. Með réttum stuðningi er smám saman hægt að ná fótfestu og styrk. Handbókin leggur jafnframt áherslu á að fólk þurfi ekki að ganga í gegnum erfiða tíma án stuðnings.
Þverfaglegur hópur vann að gerð handbókarinnar í víðtæku samstarfi við hagaðila. Hún er gefin út af Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis.
Handbókin er aðgengileg á vef embættis landlæknis, undir „Handbækur og ráðleggingar“ og verður jafnframt fáanleg í prentuðu formi hjá embættinu, líkt og aðrar handbækur og fræðsluefni frá Lífsbrú. Upplýsingar á mottaka@landlaeknir.is.
Frekari upplýsingar
Eva Skarpaas, verkefnastjóri sjálfsvígsforvarna
Ef hætta er yfirvofandi á alltaf að hafa samband við 112. Píetasíminn 1799, Hjálparsími Rauða krossins 1717 og Heilsugæslan í síma 1700 eru opin allan sólarhringinn. Einnig er hægt að nýta netspjall á heilsuvera.is og 1717.is.