Landskönnun á mataræði barna að hefjast
18. september 2026
Landskönnun á mataræði og neysluvenjum nemenda í 10. bekk er að hefjast. Rannsóknin er samstarfsverkefni embættis landlæknis og Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands (RÍN) sem hefur verið falin framkvæmd rannsóknarinnar.

Á næstu vikum verður um 250 unglingum í 10. bekk boðin þátttaka í rannsókninni. Þátttökuskólarnir eru átta talsins, víðs vegar um landið, og voru valdir af handahófi. Á næstu tveimur árum verður síðan 9 og 6 ára börnum einnig boðið að taka þátt.
Mataræði 15 ára unglinga á Íslandi hefur ekki verið kannað með sambærilegum hætti í um aldarfjórðung og því er brýnt að afla nýrra og áreiðanlegra upplýsinga um mataræði og neysluvenjur þessa aldurshóps. Auk upplýsinga um mataræði verður safnað lífsýnum til að meta næringarástand þátttakenda.
Góð þátttaka er mikilvæg til að niðurstöður rannsóknarinnar gefi sem áreiðanlegasta mynd af mataræði ungmenna í 10. bekk. Skipuleggjendur rannsóknarinnar hvetja því alla sem fá boð um þátttöku til að taka þátt og stuðla þannig að því að lýðheilsustarf á sviði næringar byggist á traustum og góðum upplýsingum. Niðurstöður rannsóknarinnar munu meðal annars nýtast við stefnumótun, þróun ráðlegginga og mat á árangri aðgerða sem miða að því að efla heilsu og vellíðan barna og ungmenna.
Heilbrigðisráðuneytið stendur straum af kostnaði við rannsóknina.
Nánari upplýsingar vef Háskóla Íslands
Ný rannsókn á mataræði 10. bekkinga að hefjast
Nánari upplýsingar
Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar, embætti landlæknis
Inga Þórsdóttir, prófessor emerita, Háskóli Íslands