Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Hreyfileikir fyrir leikskólabörn – tímaseðlar aðgengilegir á vefsíðu

30. september 2026

Hreyfing er mikilvæg fyrir börn og fullorðna á öllum aldri. Til að styðja við leikskóla í að efla hreyfingu í daglegu starfi hafa verið útbúnir tímaseðlar með fjölbreyttum hreyfileikjum. Tímaseðlarnir eru nú aðgengilegir á vefsíðu Heilsueflandi leikskóla.

Hreyfileikirnir eru ætlaðir annars vegar yngri börnum og hins vegar eldri börnum. Sumir leikjanna eru hugsaðir til framkvæmdar innandyra og aðrir utandyra. Alla leikina má þó auðveldlega aðlaga að aðstæðum og umhverfi.

Foreldrar geta einnig nýtt tímaseðlana til að fá hugmyndir að skemmtilegum hreyfileikjum sem hægt er að gera með börnum sínum í frítíma.

Frekari upplýsingar
Guðríður Hlíf Sigfúsdóttir, verkefnastjóri lýðheilsusviði
gudridur.h.sigfusdottir@landlaeknir.is