Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Forvarnardagurinn 2026: Samtal og samkennd

1. október 2026

Málþing Forvarnardagsins 2026 verður haldið í dag, fimmtudaginn 1. október, kl. 11:30 – 12:30 og verður í streymi.

Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti en þetta er í 21. skiptið sem dagurinn er haldinn. Sjónum er sérstaklega beint að ungmennum í 9. bekk grunnskóla og í ár að öllum nemendum í framhaldsskóla. Grunnskólar skrá sig til þátttöku á vefsíðu Forvarnardagsins og vinna verkefni í október. Framhaldsskólar taka þátt með öðrum hætti í ár eða í gegnum verkefnið Samtal.

Dagskrá málþings

Skólameistari Guðrún Inga Sívertsen býður gesti velkomna
Fundarstjórn – Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs embættis landlæknis

Til máls taka

  • Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir

  • Borgarstjóri, Hildur Björnsdóttir

  • Landlæknir, María Heimisdóttir

  • Raddir ungmenna – Magnús Geir Björgvinsson nemandi í Verslunarskólanum og Edda Sól Óladóttir nemandi í Verslunarskólanum og fulltrúi í ungmennaráði Samfés

Embætti landlæknis fer með verkefnastjórn Forvarnardagsins í samstarfi við embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Samfés, Bandalag íslenskra skáta, Ríkislögreglustjóra, Heimili og skóla, Rannsóknir og greiningu og Planet Youth.

Frekari upplýsingar
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs
Ingibjörg Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Heilsueflandi grunn- og framhaldsskóla
Lísbet Sigurðardóttir, verkefnastjóri Samanhópsins
Ösp Árnadóttir, verkefnastjóri í áfengis- og vímuvörnum og geðrækt