Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Ebólafaraldur í Afríku – áhætta fyrir almenning á Íslandi áfram mjög lítil

26. október 2026

Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) hefur birt nýtt áhættumat vegna áframhaldandi faraldurs ebólusjúkdóms af völdum Bundibugyo-veiru í Afríku. Faraldurinn hefur verið umfangsmestur í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (hér eftir DRC), en nýlega hafa einnig greinst smit í Kenía og Nígeríu.

Mynd: CDC/ John Saindon; CDC (PHIL)

Þrátt fyrir aukna landfræðilega útbreiðslu faraldursins metur ECDC að áhætta fyrir almenning á Íslandi og annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu sé áfram mjög lítil.

Staða faraldursins

Faraldurinn hófst í DRC í maí 2026 og hefur síðan breiðst út til átta héraða landsins. Samkvæmt upplýsingum ECDC höfðu 9.704 staðfest smit greinst þar þann 21. október og 4.687 einstaklingar látist. Smit hafa greinst í 66 heilbrigðisumdæmum, flest í héruðunum Ituri og Norður-Kivu, og útbreiðsla heldur áfram.

Í Kenía hafa greinst níu smit, þar af eitt dauðsfall. Átta einstaklingar smituðust af einstaklingi sem hafði ferðast frá DRC, þar á meðal fjórir heilbrigðisstarfsmenn. Í Nígeríu hefur greinst eitt smit hjá einstaklingi sem hafði ferðast frá Úganda. Smitrakning stendur yfir í báðum löndum.

Í Úganda greindust alls 20 smit fyrr á árinu, en faraldrinum þar var lýst lokið í ágúst.

Frá upphafi faraldursins hefur eitt innflutt smit greinst í Evrópu og þrír sjúklingar verið fluttir þangað sérstaklega til meðferðar. Allir fjórir voru heilbrigðisstarfsmenn sem höfðu starfað við hjálparstörf á sýktum svæðum. Þeir hafa allir náð bata og engin frekari smit orðið í Evrópu.

Áhætta fyrir almenning og ferðamenn

ECDC metur að áhætta fyrir almenna ferðamenn á sýktum svæðum í DRC, Kenía og Nígeríu sé lítil, svo fremi sem þeir fylgi ráðlögðum varúðarráðstöfunum. Áhætta er hins vegar meiri hjá heilbrigðisstarfsfólki og fólki við hjálparstörf sem starfar í nánum tengslum við sjúklinga eða á svæðum þar sem smit eru í útbreiðslu.

Ebólusjúkdómur er mjög alvarlegur en veiran smitast ekki auðveldlega milli manna. Smit verður fyrst og fremst við beina snertingu við blóð eða aðra líkamsvessa sýktra einstaklinga eða hluti sem hafa mengast af þeim. Einstaklingar eru ekki taldir smitandi fyrr en einkenni koma fram. Sjúkdómurinn berst ekki með loftbornu smiti.

Engin sértæk lyfjameðferð er til við ebólusjúkdómi af völdum Bundibugyo-veiru og ekkert bóluefni gegn henni hefur enn markaðsleyfi. Bóluefnið Ervebo, sem er samþykkt gegn annarri tegund ebóluveiru (Zaire-ebólu), er þó notað í DRC samkvæmt sérstakri undanþágu á meðan rannsakað er hvort það veiti einnig vernd gegn Bundibugyo-veiru.

Ráðleggingar til ferðamanna

ECDC metur að líkur á smiti meðal almennra ferðamanna til sýktra svæða séu litlar, að því gefnu að ráðlögðum varúðarráðstöfunum sé fylgt. Ekki er mælt með almennum ferðatakmörkunum til eða frá Kenía og Nígeríu vegna þeirra smita sem þar hafa greinst. Í DR Kongó er faraldurinn hins vegar mun umfangsmeiri og útbreiðsla smita heldur áfram.

Þeir sem ferðast til sýktra svæða eru hvattir til að:

  • Forðast snertingu við veika einstaklinga, líkamsvessa þeirra og lík látinna.

  • Forðast snertingu við villt dýr, bæði lifandi og dauð, og neyslu villibráðar.

  • Gæta vel að handhreinsun og almennu hreinlæti.

  • Þvo og afhýða ávexti og grænmeti fyrir neyslu.

  • Gæta að öruggum kynlífsvenjum og fylgja ráðleggingum heilbrigðisyfirvalda á viðkomandi svæðum.

Heilbrigðisstarfsfólk og hjálparstarfsfólk sem sinnir verkefnum á sýktum svæðum þarf að gæta sérstaklega að sýkingavörnum, nota viðeigandi hlífðarbúnað og fylgja verklagsreglum um eftirlit eftir hugsanlega útsetningu fyrir smiti.

Hvað á að gera ef einkenni koma fram eftir heimkomu?

Meðgöngutími ebólusjúkdóms er 2–21 dagur. Fyrstu einkenni geta verið hiti, höfuðverkur, vöðvaverkir og mikil þreyta, en síðar geta komið fram uppköst, niðurgangur og stundum blæðingar.

Þeir sem hafa ferðast um sýkt svæði og fá einkenni sem gætu samrýmst ebólusjúkdómi innan 21 dags frá heimkomu ættu að halda sig frá öðrum og hafa tafarlaust samband við heilbrigðisþjónustu símleiðis. Mikilvægt er að upplýsa um ferðasögu og hugsanlega útsetningu fyrir smiti áður en komið er á heilbrigðisstofnun.

Viðbúnaður á Íslandi

ECDC telur ekki ástæðu til almennra ferðatakmarkana eða skimunar ferðamanna við komu til Evrópu. Áhersla er þess í stað lögð á fræðslu til ferðamanna, viðbúnað heilbrigðisþjónustunnar, snemmbæra greiningu hugsanlegra smita og viðeigandi sýkingavarnir. Sóttvarnalæknir ráðleggur fólki ferðast ekki til svæða í DRC þar sem ebólusmit eru í útbreiðslu að nauðsynjalausu.

Þótt líkur á að ebólusmit berist til Íslands séu mjög litlar er mikilvægt að heilbrigðisþjónustan sé undirbúin að greina og annast hugsanlega smitaða einstaklinga með öruggum hætti.

Sóttvarnalæknir fylgist áfram með þróun faraldursins í samstarfi við alþjóðleg heilbrigðisyfirvöld og mun uppfæra ráðleggingar ef tilefni verður til.

Sóttvarnalæknir

Nánari upplýsingar