Birting skýrslu um bólusetningar gegn öndunarfærasýkingum
26. október 2026
Sóttvarnalæknir hefur birt í fyrsta sinn uppgjör á þróun ráðlegginga og þátttöku í bólusetningum gegn þeim helstu öndunarfærasýkingum sem opinberar ráðleggingar hafa gilt um á tímabilinu 2020-2025.

Síðastliðin ár hefur framboð forvarna fyrir börn gegn inflúensu og RSV breyst hér á landi og sama er að segja um forvarnir fyrir fullorðna gegn inflúensu og pneumókokkum. Þessi skýrsla gefur til kynna stöðuna fyrir þær breytingar og er grundvöllur fyrir því að hægt verði að fylgjast með áhrifum úrræðanna sem nú bjóðast á faraldsfræði öndunarfærasýkinga á næstu árum.
Saga ráðlegginga um COVID-19 bólusetningar hér á landi er rakin í skýrslunni en samningar um COVID-19 bóluefni hafa nú runnið sitt skeið og því tímabært að endurskoða hvort áfram sé tilefni til bólusetninga á samfélagsgrundvelli eða hvort einstaklingsbundið læknisfræðilegt mat þurfi til að gefa viðeigandi ráðleggingar um bólusetningar gegn COVID-19.
Sóttvarnalæknir