Birting lýðheilsuvísa 2024
17. september 2024
Lýðheilsuvísar 2024 verða kynntir föstudaginn 20. september kl. 11:00-13:00. Hægt verður að fylgjast með kynningunni í streymi.
Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan þjóðarinnar og tengda þætti. Birting lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum hefur verið árlegur viðburður síðan árið 2016 og annað árið í röð eru gefnir út lýðheilsuvísar fyrir fjölmennustu sveitarfélögin. Lýðheilsuvísum er ætlað að auðvelda sveitarfélögum, þ.m.t. Heilsueflandi samfélögum, og heilbrigðisþjónustu að greina stöðuna í sínu umdæmi, finna styrkleika og áskoranir og meta þarfir íbúanna þannig að hægt sé að vinna að bættri heilsu og líðan.
Dagskrá
Ávarp
Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs GrindavíkurbæjarÞegar dynur yfir samfélag - lýðheilsuvísar og áföll
Alma D. Möller, landlæknirLýðheilsuvísar tengdir samfélaginu og heilsu og sjúkdómum
Sigríður Haraldsd. Elínardóttir, sviðsstjóri heilbrigðisupplýsinga, embætti landlæknisLýðheilsuvísar tengdir lifnaðarháttum og líðan
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsusviðs, embætti landlæknisHagnýt notkun lýðheilsuvísa við skipulag heilbrigðisþjónustu HSS
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja