Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Ársskýrslur um skimun fyrir legháls- og brjóstakrabbameini 2025

25. júní 2026

Embætti landlæknis hefur birt skýrslur fyrir árið 2025 um skimun fyrir leghálskrabbameini og skimun fyrir brjóstakrabbameini.

Í skýrslunum er birt gæðauppgjör út frá þeim gæðavísum sem valdir voru af embætti landlæknis eftir að núverandi fyrirkomulagi krabbameinsskimana var komið á. Þetta er í fimmta sinn sem gæðauppgjörið er birt. Þar er meðal annars gerð grein fyrir þátttöku í skimun fyrir legháls- og brjóstakrabbameini á landsvísu árið 2025 en einnig er fjallað um svartíma, niðurstöður rannsókna, sem og nýgengi og dánartíðni vegna þessara krabbameina.

Helstu niðurstöður eru þær að þátttökuhlutfall í skimun fyrir brjóstakrabbameini hækkaði verulega á milli ára og var 65% árið 2025. Á síðustu þrem árum hefur þátttaka því aukist um 13 prósentustig. Þátttaka er enn undir viðmiðunarmörkum sem miðast við 75% þátttöku.

Einnig mátti sjá aukna þátttöku í skimun fyrir leghálskrabbameini en um 70% kvenna tóku þátt í skimuninni. Það er hækkun um sex prósentustig frá fyrra ári.

Frekari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is