Viðbragðsáætlun vegna sóttvarna alþjóðaflugvalla
18. janúar 2018
Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa gefið út Viðbragðsáætlun vegna sóttvarna alþjóðaflugvalla, landsáætlun en vinna við áætlanagerðina hófst í apríl 2017.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Landlæknir logo - Fréttamyndir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa gefið út Viðbragðsáætlun vegna sóttvarna alþjóðaflugvalla, landsáætlun en vinna við áætlanagerðina hófst í apríl 2017. Áætlunin tekur til alþjóðaflugvalla landsins en það eru Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Egilsstaðar- og Akureyrarflugvöllur.
Innleiðing áætlunarinnar fór fram í október 2017 en þá voru lokadrög kynnt starfsmönnum og viðbragðsaðilum hlutaðeigandi flugvalla. Stutt skrifborðsæfing var haldin í kjölfarið á hverjum flugvelli. Á þessum æfingum voru lagðar fram þrjár sviðsmyndir frá raunverulegum atvikum er tengdust nefndum flugvöllum og fundarmenn beðnir um að leggja fram ábendingar um fyrstu viðbrögð viðbragðsaðila og starfsmanna.
Viðbragðsáætlunin byggir á áætlun sem gerð var fyrir Keflavíkurflugvöll árið 2015 og æfð sama ár. Helstu breytingar frá þessari áætlun er að nú hefur hlutverk flugrekenda verið skráð og einnig hlutverk heilbrigðiseftirlits á hverjum flugvelli, Ferðamálastofu, Matvælastofnunar, Geislavarna ríkisins, Umhverfisstofnunar og Samgöngustofu. Þá hefur aðdraganda virkjunar verið breytt á þann veg að lögreglustjórar og umdæmislæknir sóttvarna hafa fulla heimild til virkjunar og er það í samræmi við það verklag sem almennt er í gildi.
Lesa nánar: Viðbragðsáætlun vegna sóttvarna alþjóðaflugvalla - landsáætlun
Sóttvarnalæknir