Fara beint í efnið

Flensur og aðrar pestir - 5. vika 2018

8. febrúar 2018

Svipaður fjöldi greindist með staðfesta inflúensu í fimmtu viku ársins borið saman við vikuna á undan.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Svipaður fjöldi greindist með staðfesta inflúensu í fimmtu viku ársins borið saman við vikuna á undan. Enn greindust flestir með inflúensu B. Hátt hlutfall inflúensu B greininga er í samræmi við stöðuna á meginlandi Evrópu en þar er inflúensa B algengasta greiningin. Hér á landi var inflúensan oftast staðfest hjá öldruðum, en stöku börn og fólk á öðrum aldri greindist einnig.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Í síðustu viku (5. viku) fjölgaði þeim sem greindust með inflúensulík einkenni í heilsugæslunni og bráðamóttökum umtalsvert, sjá mynd 1.

Staðan á meginlandi Evrópu. Nokkuð dróst úr inflúensunni á meginlandi Evrópu í 4. viku, hægt er að sjá nánari upplýsingar á inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinngar (WHO). Inflúensa B var enn ríkjandi en bæði inflúensa A(H3) og inflúensa A(H1)pdm09 hefur greinst á meginlandinu en hlutfall þessara veirustofna er breytilegt milli landa og vöktunarkerfa.

Innlagnir vegna inflúensu á Landspítala. Samkvæmt upplýsingum frá sýkingavarnadeild Landspítala hefur innlögnum ekki fjölgað í 5. viku miðað við vikuna á undan. Mynd 2 sýnir aldursdreifingu þeirra sem hafa legið á Landspítala með inflúensu frá því í 37. viku 2017. Flestir sem leggjast inn vegna inflúensu eru einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma eða aldraðir.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Enn greinast margir með staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV). Í 5. viku var veiran staðfest hjá 18 einstaklingum, eins og sjá má á mynd frá veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 4 börn á fyrsta og öðru aldursári og 7 einstaklingar voru 70 ára og eldri. Aldraðir og ungabörn eru þekktir áhættuhópar en veiran hefur einnig verið staðfest hjá fólki á öðrum aldri. Í síðustu viku var human metapneumóveira staðfest hjá þremur einstaklingum en þeir sem greinast með þessa veiru geta haft svipuð einkenni og RSV veldur hjá börnum.

Samantekt og mat á öndunarfæraveirum síðastliðnar vikur. Bæði Inflúensa A og B breiðast út í samfélaginu og er hún oftast staðfest hjá fullorðnum og öldruðum. Á sama tíma og inflúensan færist í vöxt í samfélaginu hefur ekki orðið samsvarandi aukning á innlögnum á Landspítala af völdum inflúensunnar. RSV-veiran breiðist enn út og greinist oftast hjá ungum börnum og öldruðum einstaklingum.

Meltingarfærasýkingar. Talsvert hefur verið um niðurgang samkvæmt tilkynningum frá heilsugæslunni og bráðamóttökum, sjá mynd 3. Algengasti sýkingarvaldurinn hefur verið rótaveira einkum hjá ungum börnum. Nokkrir voru með staðfesta nóró- eða sapóveirusýkingu, flestir þeirra voru á barnsaldri.

Sóttvarnalæknir