Fara beint í efnið

Flensur og aðrar pestir - 1. vika 2018

12. janúar 2018

Á síðustu vikum hefur orðið nokkur aukning í fjölda þeirra sem greinast með inflúensu eins og sjá má á vef veirufræðideildar Landspítala.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala í 1. viku 2018. Á síðustu vikum hefur orðið nokkur aukning í fjölda þeirra sem greinast með inflúensu eins og sjá má á vef sýkla- og veirufræðideildar Landspítala. Samtals 22 einstaklingar greindust með inflúensu A, þar af voru 20 með inflúensu A(H3) og tveir með inflúensu A(H1)pdm09. Inflúensa B var staðfest hjá 14 einstaklingum. Inflúensan greindist oftast hjá fullorðnum og öldruðum einstaklingum, en stöku börn hafa einnig verið að greinast.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Á sama tíma fjölgar þeim sem greinast með inflúensulík einkenni í heilsugæslunni og bráðamóttökum, sjá mynd 1.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensan eykst nú á meginlandi Evrópu en hægt er að sjá nánari upplýsingar á inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Bæði inflúensa A og inflúensa B greinist.

Innlagnir vegna inflúensu á Landspítala. Aukning er á fjölda þeirra sem greinast með inflúensu á Landspítalanum samkvæmt upplýsingum frá sýkingavarnadeild Landspítala. Mynd 2 sýnir aldurdreifingu þeirra sem hafa þurft innlagnar við vegna inflúensu frá því í 37. viku í haust. Flestir sem leggjast inn vegna inflúensu eru einstaklingar með undirliggjandi sjúkóma eða aldraðir.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Í síðustu viku var Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV) hjá 20 einstaklingum, eins og sjá má á vef sýkla- og veirufræðideildar Landspítala. Þar af voru tíu börn á fyrsta og öðru aldursári en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem ásamt ungabörnum er þekktur áhættuhópur. Á sl. fjórum vikum hafa samtals 19 einstaklingar greinst með human metapneumóveiru sem getur valdið svipuðum einkennum og RSV gerir hjá börnum.

Samantekt og mat á öndunarfæraveirum síðastliðnar vikur. Bæði Inflúensa A og B breiðast út í samfélaginu og er hún oftast staðfest hjá fullorðnum og öldruðum. Fjölgun er á inflúensugreiningum meðal þeirra sem leita á Landspítala, en þeir sem leggjast inn eru aðallega einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma eða aldraðir. RSV veiran virðist einnig breiðast út og greinist oftast hjá ungum börnum og öldruðum einstaklingum, einnig er nokkuð um metapneumóveirusýkingar.

Meltingarfærasýkingar. Dregið hefur úr tilkynningum um niðurgang frá heilsugæslunni og bráðamóttökum, sjá mynd 3. Stöku einstaklingar hafa verið að greinast með iðrakveisuveirur í viku hverri, bæði nóró- og sapóveiru, auk rótaveiru sem oftast finnst hjá ungum börnum, sjá nánar á vef sýkla- og veirufræðideildar Landspítala.

Sóttvarnalæknir