Fara beint í efnið

Bóluefni gegn árlegri inflúensu 2019/2020 verður tilbúið til afhendingar frá og með 16.9.2019

13. september 2019

Bóluefni gegn árlegri inflúensu er nú komið til landsins og verður tilbúið til afhendingar hjá Parlogis ehf. frá og með 16.9.2019. Í ár, eins og fyrri ár, verður notað bóluefnið Influvac sem inniheldur vörn gegn inflúensu A(H1N1), A(H3N2) og inflúensu B.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Bóluefni gegn árlegri inflúensu er nú komið til landsins og verður tilbúið til afhendingar hjá Parlogis ehf. frá og með 16.9.2019.

Í ár, eins og fyrri ár, verður notað bóluefnið Influvac sem inniheldur vörn gegn inflúensu A(H1N1), A(H3N2) og inflúensu B.

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningu:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

  • Þungaðar konur.

Vakin er athygli á því að ofangreindir áhættuhópar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðarlausu.

Um 70.000 skammtar af bóluefninu eru tilbúnir til afhendingar sem er svipað magn og var til ráðstöfunar á síðasta vetri. Dreifing bóluefnisins er ákvörðuð af sóttvarnalækni og miðast við dreifingu vetrarins 2018/2019 þar sem áhersla var lögð á bólusetningu áhættuhópa.

Almenn bólusetning er í höndum heilsugæslunnar en auk þess er bólusett á sjúkrastofnunum og ýmis fyrirtæki og læknar hafa tekið að sér bólusetningu almennings og starfsmanna.

Þessir aðilar munu á næstunni auglýsa hvernig bólusetningunni verður háttað en yfirleitt er byrjað að bólusetja í október.

Eins og undanfarin ár er ekki nákvæmlega vitað á þessari stundu hvaða tegund inflúensu mun herja á landsmenn veturinn 2019 til 2020. Inflúensan er enn ekki farin að láta á sér kræla hér á landi en ávallt má búast við henni í kringum áramótin.

Bólusetning gegn inflúensu veitir yfirleitt allt að 60–70% vörn gegn sjúkdómnum en jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái inflúensu eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.

Sóttvarnalæknir