Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Góður andi á fyrsta starfsmannafundi Lands og skógar

14. desember 2023

Starfsfólkið sem myndar frá og með áramótum hina nýju stofnun, Land og skóg, hittist á tveggja daga fundi sem fram fór á Selfossi 21.-22. nóvember.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra flutti ávarp í upphafi fundar og blés fundarfólki anda í brjóst_1280x591.jpg

Á fyrri deginum var meðal annars kynnt hugmynd að merki fyrir stofnunina nýju. Á fundinum tók starfsfólkið virkan þátt í mótun Lands og skógar. Forstöðumaðurinn, Ágúst Sigurðsson, segir að fundurinn gefi góðan byrir fyrir áframhaldandi undirbúning hinnar nýju stofnunar.

Góður andi var strax á fyrri degi fundarins og mikill hugur í starfsfólkinu að búa til þessa nýju stofnun sem segja má að nú verði senn það sem hún var á árabilinu 1908 til 1914 þegar embætti skógræktarstjóra hafði með höndum bæði skógræktar- og sandgræðslumál. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ávarpaði fundinn, hvatti starfsfólkið til dáða og óskaði því velfarnaðar í sameiningarvinnunni.

Annars var á fundinum unnið í blönduðum vinnuhópum sem tóku fyrir ýmis viðfangsefni en einnig sérhæfðari hópum um afmarkaðri viðfangsefni hinnar nýju stofnunar. Ráðgjafar frá KPMG aðstoðuðu við þessa vinnu og leiða stofnunina áfram fram á næsta ár við mótunarstarfið.

Meðal viðburða fyrri daginn var hópefling undir stjórn Ragnhildar Vigfúsdóttur og sömuleiðis var kynnt frumútgáfa að merki nýrrar stofnunar sem af fyrstu viðbrögðum starfsfólks féll vel í geð. Eftir er að ljúka hönnun merkisins og í tengslum við það verða einnig unnin drög að heildarútliti Lands og skógar. Stofnunin getur því sýnt andlit sitt þegar hún tekur til starfa um áramótin og leysir af hólmi Skógræktina og Landgræðsluna.

Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, segist mjög ánægður með gríðarlega góða mætingu starfsfólk stofnananna tveggja á fundinn. Margvíslegt hafi verið gert á léttari nótum að kvöldi fyrri dagsins. Meðal annars hafi tónlistarfólk og annað hæfileikafólk úr hópnum farið á miklum kostum. Að morgni síðari dagsins var áfram unnið í vinnuhópum frá kl. níu til tólf. Meðal annars var tekið fyrir skipulag og starfshættir og að lokum hugað að gildum fyrir hina nýju stofnun. Þetta gekk áfram mjög vel að sögn Ágústs og það gefi góðan byr fyrir áframhaldandi undirbúning hinnar nýju stofnunar. Fundurinn seinni daginn fór fram í stórum sal í hinum nýja miðbæ á Selfossi og endaði á hádegisverði í Mathöllinni þar áður en hver hélt heim í sína áttina.