Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Ágúst Sigurðsson skipaður forstöðumaður Lands og skógar

13. desember 2023

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað Ágúst Sigurðsson sem forstöðumann Lands og skógar, nýrrar stofnunar sem verður til við sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar.

Ágúst Sigurðsson

Ágúst hlaut doktorsgráðu í erfðafræði frá sænska Landbúnaðarháskólanum í Uppsölum árið 1996 og útskrifaðist með B.Sc. gráðu frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri árið 1989.

Ágúst var sveitarstjóri Rangárþings ytra frá árinu 2014 til 2022 og var rektor við Landbúnaðarháskóla Íslands frá árinu 2004 til 2014 þar sem hann stýrði m.a. sameiningu Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Garðyrkjuskóla ríkisins. Þá starfaði Ágúst sem landsráðsnautur í búfjárerfðafræði og hrossarækt hjá
Bændasamtökum Íslands frá árinu 1996 til 2004.

Ágúst hefur setið í stjórnum, ráðum, nefndum og hópum tengdum meðal annars landbúnaði, landgræðslu, hrossarækt og háskólamálum. Hann hefur ritað fjölda vísindagreina í alþjóðlegum ritrýndum vísinda- og ráðstefnuritum ásamt greinum í fagtímarit og blöð.

Land og skógur tekur formlega til starfa þann 1. janúar 2024. Embætti forstöðumanns var auglýst í júní síðastliðnum og sóttu níu um embættið. Hæfnisnefnd var ráðherra til ráðgjafar við mat á umsækjendum.

Frétt af vef matvælaráðuneytisins