Niðurstöður þjónustukönnunar fyrstu þrjá mánuði ársins
7. apríl 2025
Góðar niðurstöður

Nú hafa niðurstöður þjónustukönnunar fyrir mars verið skilað inn en það voru um 1622 þjónustuþegar sem svöruðu könnuninni síðasta mánuðinn. Síðustu þrjá mánuði hafa 5221 svarað og verða niðurstöður þess tímabils teknar saman í þessari frétt.
Á myndinni má sjá svör við spurningunni ,,Á heildina litið, hversu góð eða slæm finnst þér þjónustan?”. Talan í sviganum táknar fjölda einstaklinga sem hafa svarað.
Heilsugæslan í Vík fær hæstu einkunnina hingað til eða 4,8 af 5 mögulegum. Einnig má sjá að Rangárþing fær aðeins 3,7 í einkunn sem má áætla, út frá opnum svörum þjónustuþega, að sé vegna fyrrum læknaskorts í Rangárþingi. Nú hafa verið ráðnir tveir heimilislæknar í Rangárþingi en nánari frétt um það má lesa hér.

92% þeirra sem svöruðu spurningunni um viðmót starfsfólks þótti það gott eða mjög gott. Á myndinni má sjá hvernig Heilbrigðisstofnun Suðurlands stendur í samanburði við aðrar stofnanir landsins.

Einnig er spurt ,,Hversu hratt eða hægt fannst þér þjónustan ganga fyrir sig?”. Á þessari mynd má sjá hvernig Heilbrigðisstofnun Suðurlands (græna línan) hefur hægt og rólega bætt hraða þjónustunnar frá því að könnunin hófst.

Opnu svörin snúa flest að of langri bið eftir tíma hjá lækni. Þá eru líka mörg önnur gagnleg svör sem hægt er að nýta til að auka skilvirkni og bæta þjónustu innan HSU. Öll svör eru yfirfarin og tekin til greina hjá stjórnendum hverra starfsstöðva og eininga innan þeirra og leggja þeir sig fram við að vinna úr þeim.
Í opnu svörunum leynast líka mörg hrós sem gaman er að segja frá:
Starfsfólkið var frábært, öll sem eitt
Hjálpsemi, hlýtt viðmót og kurteisi. Er mjög ánægð með heilsugæsluna takk fyrir mig.
Frábær þjónusta hér í Eyjum þrátt fyrir mikið álag á heilsugæslunni. Læknar og hjúkrunarfræðingar eru umhyggjusamt fólk sem leggur sig fram um að sinna þjónustu við sjúklinga eins hratt og vel og mögulegt er.
Þjónusta tveggja lækna í Þorlákshöfn er til fyrirmyndar
Ég fékk yndislega hjúkku á bráðamóttökunni og læknir, þau eiga bæði hrós skilið fyrir vinnuna sina 😊
Skjót og góð þjónusta í Laugarási, öll alveg frábær.
Það bregst ekki að blóðprufur á Selfossi (HSU) standast nánast alltaf tímann sem er valinn á Heilsuveru og stundum kemst fólk fyrr að ef mætt er tímanlega. Þau sem sinna blóðprufum eru nærgætin og fagleg og eiga hrós skilið fyrir viðmót sitt.
Frábært fólk í Vík!!!
Mjög ánægður með starfsfólk sjúkrahússins þá sérstaklega á Fossheimum