ADIS námskeið fyrir fagfólk
Námskeið fyrir fagfólk sem vinnur með börnum og foreldrum og sinnir greiningarvinnu og meðferð.
Á námskeiðinu er farið ítarlega í hvernig viðtalið er lagt fyrir, sýndar upptökur með sýnishornum af greiningarviðtölum og þátttakendur fá tækifæri til að æfa sig í að leggja viðtalið fyrir.
ADIS kvíðagreiningarviðtal
ADIS (Anxiety Disorders Interview Schedule for DSM-IV) er viðurkennt greiningarviðtal sem notað er við greiningu og meðferð barna og unglinga á aldrinum 7 til 17 ára.
Viðtalið er hálf-staðlað og skiptist í viðtal við barnið og viðtal við foreldra. Farið er ítarlega í allar kvíðaraskanir, auk þess sem skimað er fyrir öðrum þáttum eins og:
Lyndisröskunum og hegðunar- og mótþróaröskun.
ADHD, kjörþögli og áfallastreitu.
Vímuefnavanda, átröskunum, geðrofseinkennum og þroskafrávikum.
ADIS er talið eitt áreiðanlegasta greiningarviðtalið til að meta kvíða hjá börnum og ungmennum. Það er mikið notað í rannsóknum og klínískri vinnu þar sem það þykir gefa mjög nákvæma og trausta niðurstöðu.
Fyrirkomulag
Staðsetning kennslu: Geðheilsumiðstöð barna, Vegmúla 3, 108 Reykjavík
Leiðbeinendur: Sálfræðingar á Geðheilsumiðstöð barna
Námskeiðið: Samtals tíu tímar á tveimur samliggjandi dögum, annan daginn frá 13 til 16 og hinn frá 9 til 16
Hámarksfjöldi þátttakenda: 20
Námskeiðsgjald: 35.000 kr.
Innifalið: Námsgögn - tvö viðtalshefti af hvorum hluta viðtalsins (barnaviðtal og foreldraviðtal) og notendahandbók á ensku (ADIS-IV: Child and Parent Therapist Guide) og kaffiveitingar.
Mikilvægt er að þátttakendur nýti námskeiðsgögnin til að undirbúa sig fyrir seinni morguninn þegar fyrirlagning viðtalsins verður æfð.
Pöntun á ADIS viðtalsheftum
Íslensk ADIS viðtalshefti er hægt að panta hjá Geðheilsumiðstöð barna og eru seld 5 saman í pakka á 3.000 kr. Pöntun fer fram með tölvupósti og tilgreina þarf:
Hvort óskað er eftir barnaheftum, foreldraheftum eða báðum.
Greiðsluupplýsingar: Nafn pöntunaraðila ásamt nafni og kennitölu greiðanda.
Hvort heftin séu sótt til eða send í pósti (sendingarkostnaður bætist við).
Notendahandbókin er á ensku, gefin út af Oxford University Press, og fæst í almennum vefverslunum.
Nánari upplýsingar
ADIS-kvíðagreiningarviðtalið fyrir börn er gefið út á íslensku af Þroska- og hegðunarstöð (ÞHS). Útgáfan er unnin í samstarfi við Oxford University Press og höfunda viðtalsins, þær Wendy Silverman og Anne Marie Albano.
Sendið fyrirspurn til Geðheilsumiðstöðvar barna.
