Fara beint í efnið
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Að lesa í tjáningu ungbarna (NBO)

Námskeiðið Newborn Behavioural Observations (NBO) er þróað hjá Brazelton Institute í Boston.

Markmiðið er að þjálfa fagfólk í að lesa í atferli og tjáningu nýfæddra barna og efla sömu færni hjá nýorðnum foreldrum. Með því eru foreldrar styrktir í því að bregðast við þörfum barnsins síns á næman og skilningsríkan hátt.

Námskeiðið nýtist öllum sem starfa með foreldrum og ungbörnum að þriggja mánaða aldri; ljósmæðrum, hjúkrunarfræðingum, læknum, sálfræðingum, sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum, félagsráðgjöfum, barnaverndarstarfsmönnum og öðrum meðferðaraðilum.

Fyrirkomulag

  • Staðsetning námskeiðs: Tilkynnt síðar

  • Leiðbeinendur

    • Stefanía B. Arnardóttir sérfræðingur í hjúkrun og NBO leiðbeinandi

    • Anna Guðríður Gunnarsdóttir sérfræðingur í hjúkrun og NBO leiðbeinandi

    • Sigrún H. Wahlgren Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur og leiðbeinandi í þjálfun

  • Námskeiðið er í heild 5 dagar auk færniþjálfunar

    • Námskeiðsdagar: 21. og 22. september 2026, klukkan 9 til 16.

    • Handleiðsludagar: 4. nóvember og 9. desember 2026, klukkan 9 til 16

    • Útskriftardagur: 8. mars 2027, klukkan 9 til 15

  • Hámarksfjöldi þátttakenda: 20 manns

  • Námskeiðsgjald : 85.000 kr. Handbók, verkfæri og hádegismatur innifalið.

Um námskeiðið

Á námskeiðsdögum er farið í fræðilegan bakgrunn "Að lesa í tjáningu ungbarna". Handleiðsludagar snúast um að fylgja eftir færniþjálfun. Þátttakendur þurfa að lesa handbókina, beita aðferðinni og skila "dagbókum" um fimm skoðanir og taka upp tvö myndbönd af skoðun á milli 22. september og 9. desember. Eftir námskeiðs- og handleiðsludaga hefst útskrifarferlið og þá þarf að framkvæma fimm skoðanir með foreldrum í eigin starfsumhverfi. Handleiðsla og stuðningur er veittur í öllu ferlinu.

Umsjón

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur umsjón með námskeiðinu