Leiðbeinendanámskeið - Snillingarnir
Námskeiðið er ætlað uppeldismenntuðu fagfólki, kennurum, sálfræðingum, iðjuþjálfum og þroskaþjálfum. Reynsla af vinnu með börnum með sérþarfir er æskileg.
Farið er ítarlega í innihald, framkvæmd og útfærslu Snillinganámskeiðsins og hvernig má beita jákvæðri hegðunarstjórnun. Ef setja á námskeiðið upp á vinnustað er mælt með að tveir starfsmenn sæki leiðbeinendaþjálfun saman.
Snillinganámskeiðið er félagsfærniþjálfun fyrir börn
Námskeiðið er samtals 15 klukkustundir, þar sem börnin hittast 2 sinnum í viku, í 90 mínútur í senn, í alls 5 vikur til að læra:
Félagsfærni og tilfinningastjórnun.
aðferðir til að leysa vandamál.
sjálfsstjórn og skipulag-og athyglisfærni.
Námskeiðið er byggt upp sem stöðvaþjálfun með innbyggðu umbunarkerfi þar sem börnin fá jákvæða endurgjöf og stig.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er
Staðnámskeið, haldið í Geðheilsumiðstöð barna, Vegmúla 3, 108 Reykjavík
Námskeiðið er í X skipti
Innifalið er leiðbeinindamappa, myndspil og veitingar
Nýtt námskeiðsefni (2. útgáfa)
Fagaðilar sem hafa þegar sótt leiðbeinendanámskeið geta keypt uppfærð gögn:
Nýr námskeiðspakki sem kostar 10.000 krónur og inniheldur leiðbeinendamöppu, nýtt tilfinningamyndaspil og rafrænan aðgang að öllu efni.
Auka leiðbeinendamappa kostar 4.500 kr. stk.
Panta ný gögn
Sendið nafn og upplýsingar um hvenær námskeið var sótt á namskeid.gmb@heilsugaeslan.is.
Um Þróun námskeiðsins
Námskeiðið er hannað af sálfræðingum og iðjuþjálfum hjá Geðheilsumiðstöð barna (GMB). Námskeiðið byggir á hugrænni atferlismeðferð (HAM) og nýjustu rannsóknum á þroskaferlum barna.
Rannsóknir sýna bætta félagsfærni, aukna vellíðan og minni athyglisvanda hjá börnum sem ljúka námskeiðinu.
Skráning og nánari upplýsingar
Hafið samband við okkur
með tölvupósti: namskeid.gmb@heilsugaeslan.is
í síma: 513 6600
