Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Heilbrigðisskoðun innflytjenda

Þjónusta

Heilbrigðisskoðun innflytjenda annast heilbrigðisskoðun flóttamanna og hælisleitenda og annarra innflytjenda frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins eftir komuna til landsins.

Að skoðun lokinni er gefið út heilbrigðisvottorð fyrir þau sem sækja um atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi.

Viðtal og skoðun læknis

Oftast eru gerðar eftirfarandi rannsóknir:

  • Berklapróf hjá þeim sem eru 35 ára eða yngri.

  • Tekin er röntgenmynd af lungum hjá þeim sem eru eldri en 35 ára til að útiloka virka berkla.

  • Blóðprufa þar sem leitað er að:

    • HIV / Alnæmi

    • Lifrarbólgu B og C

    • Sárasótt

Í einstaka tilfellum metur læknir það svo að ástæða sé til að gera aðrar rannsóknir á grundvelli sögu sjúklings.

Framhalds viðtal og skoðun ef þarf

Þau sem fara í berklapróf þurfa að koma tvisvar. Aflestur á berklaprófi fer fram tveimur til þremur sólarhringum eftir að próf er gert. Ef berklapróf er jákvætt er tekin lungnamynd til að útiloka virka berkla.

Ef niðurstöður HIV-, lifrarbólgu- og / eða sárasóttarprófa gefa tilefni til er sjúklingur boðaður aftur til viðtals og greidd leið til bestu úrræða á Landspítala háskólasjúkrahúsi.

Heilbrigðisvottorð

Ef allar niðurstöður eru eðlilegar skrifar læknir heilbrigðisvottorð.

Gera má ráð fyrir að útgáfa vottorðs taki eina til tvær vikur.