Heilaörvunarmiðstöð
TMS meðferð - spurningar og svör
Heilaörvun er samheiti yfir ýmsar lækningaaðferðir sem eru frekar nýjar af nálinni þar sem notast er við ýmis konar orkugjafa svo sem raforku, segulorku, hljóðbylgjur og ljós til að breyta virkni taugafruma í heila.
Heilaörvun hefur verið notuð til að meðhöndla margs konar tauga- og geðsjúkdóma.
TMS stendur fyrir Transcranial Magnetic Stimulation sem merkir segulörvun um höfuð. Segulörvun er hratt vaxandi meðferðarform við ýmsum sjúkdómum, m.a. þunglyndi. Meðferðin þolist vel og veldur fáum og vægum aukaverkunum.
Í stuttu máli komast segulpúlsar fyrirstöðulaust 2-4 cm í gegnum höfuðleður og höfuðkúpu þar sem þeir ýmist örva eða letja taugafrumur í heilaberki. Segulörvun hefur áhrif á taugafrumur í heila með því að framkalla veikt rafsvið í þeim taugafrumum sem meðferðinni er beint að. Með því að breyta rafsviði taugafrumu er ýmist hægt að örva eða letja taugaboð hennar. TMS-meðferð felur ekki í sér inngrip og þarfnast hvorki svæfingar né skurðaðgerðar.
Rétt er að taka fram að TMS-meðferð er ekki það sama og raflækningar (ECT), sem er önnur gagnleg meðferð við alvarlegum geðsjúkdómum þ.m.t. alvarlegu þunglyndi.
Hefðbundin þunglyndismeðferð samanstendur af sálfræðimeðferð og lyfjameðferð og má segja að hún gagnist í 60-70% tilvika. Sá hópur sem hefðbundin meðferð gagnast ekki þrátt fyrir að fullreynt hafi verið, teljast þá glíma við meðferðarþrátt þunglyndi. Þar sem hefðbundin meðferð hefur ekki náð árangri getur segulörvun eða TMS-meðferð reynst gagnleg.
Nei. Í raflækningum (Electroconvulsive Therapy - ECT) er gefið rafstuð sem berst ósértækt um allan líkamann og veldur krampa. Af þeim sökum er nauðsynlegt að svæfa þá sem fá raflostmeðferð.
Í TMS-meðferð er hins vegar notast við segulpúlsa sem draga aðeins um þrjá sentimetra inn fyrir höfuðkúpuna og er meðferðin því sértækari. Frábendingar TMS-meðferðar eru fáar og aukaverkanir langoftast vægar. Skjólstæðingar sem þiggja TMS-meðferð geta haldið sína leið í lok hverrar meðferðarkomu.
TMS-tæknin er ung og þróunin ör. Sem stendur eru fjórar ábendingar viðurkenndar af EMA (European Medicine Agency) og FDA (Food and Drug Administration) í Bandaríkjunum en trúlega á þeim eftir að fjölga á næstu árum enda margt mjög lofandi í pípum rannsakenda út um allan heim.
TMS-meðferð er viðurkennt meðferðarform við:
Meðferðarþráu þunglyndi (TRD)
Áráttu þráhyggjuröskun (OCD)
Sem stoðmeðferð til að hætta reykingum (an aid for smoking cessation in adults)
Mígreni höfuðverk
Sem stendur er aðeins boðið upp á meðferð við meðferðarþráu þunglyndi á Heilaörvunarmiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, en það kann að breytast í nánustu framtíð.
Í TMS-meðferð er segulörvun beint að svæði í framheila sem er vanvirkt hjá fólki sem þjáist af þunglyndi.
TMS-meðferð örvar taugafrumur í heilaberki sem síðan senda boð til tauga í undirliggjandi taugakjörnum / knippum sem sýnt hefur verið fram á að eru vanvirkari hjá fólki með lyndisraskanir eins og þunglyndi.
Með endurtekinni segulörvun þessarra svæða má bæta líðan.
Oftast er byrjað að meðhöndla á vinstri framheila (F3) með svokallaðri iTBS-meðferð (e. intermittent Theta Burst Stimulation), en það er hraðvirk TMS-meðferð (3 mínútur) sem sýnt hefur verið fram á að sé jafn áhrifarík og hefðbundin 37 mínútna meðferð sem mest hefur verið notuð fram til þessa.
Ef einhverra hluta vegna iTBS meðferð þolist illa eða ef mikill kvíði er samfara þunglyndi getur verið að geðlæknir ávísi s.k. rTMS meðferð (e. repetitive TMS-meðferð) á hægri framheila (F4). Sú meðferð tekur 25 mínútur og snýst um að letja taugabrautirnar (draga úr virkni) en ekki örva.
Framkvæmd meðferðar
Heilaörvunarmeðferð með TMS tekur að jafnaði um 4-6 vikur og krefst ákveðinnar skuldbindingar um að mæta tímanlega alla virka daga (20-30 komur allt í allt). Í undantekningatilvikum getur TMS-meðferð varað skemur eða lengur.
Eftir fjögurra vikna meðferð (20 komur) eru áhrif meðferðarinnar metin í viðtali við geðlækni og með aðstoð spurningalista. Ef enginn árangur er merkjanlegur er meðferð hætt. Ef hins vegar skjólstæðingur sýnir einhvern ávinning er meðferð haldið áfram í tvær vikur í viðbót.
TMS-meðferð þolist almennt vel. Meðferðin sjálf er svo gott sem sársaukalaus.
Þegar þú hefur komið þér þægilega fyrir í stól með góðum höfuðpúða, sem heldur höfðinu skorðuðu meðan á meðferð stendur, mun meðferðaraðilinn koma TMS-meðferðarspólunni fyrir.
Þú gætir fundið fyrir púlsunum líkt og náladofa eða vægum sviða í hársverðinum eða með ósjálfráðum vöðvakippum í andlitsvöðvum, augum eða nefi.
Einfalt er að endurstilla spóluna þannig að þessum óþægindum sé haldið í lágmarki.
Árangur TMS meðferðar
Rannsóknir sýna að TMS-meðferð getur dregið verulega úr einkennum þunglyndis hjá yfir helmingi sjúklinga sem glíma við meðferðarþrátt þunglyndi en allt að 30% þeirra losna alveg við einkenni þunglyndis í lengri eða skemmri tíma.
Fjölskyldumeðlimir, ættingjar eða nánir vinir eru gjarnan þeir fyrstu til að tjá jákvæð áhrif meðferðarinnar. Almennu áhrifin geta verið þau að þér líður betur, skapið batnar og orka til daglegra athafna eykst. Einnig getur verið að þú farir að sofa betur, eigir auðveldara með að einbeita þér eða að þú ferð að hafa gaman af athöfnum sem þér þóttu áður leiðinlegar eða óþægilegar.
Sumir finna breytingarnar fljótt, jafnvel í fyrstu viku meðferðarinnar á meðan aðrir finna ekki breytingu fyrr en undir lok meðferðarinnar. Sumum hefur nýst vel að halda dagbók á meðan á meðferðinni stendur.
Hafa ber í huga að TMS meðferð er ekki allsherjar lausn við öllum einkennum þunglyndis auk þess sem hún virkar ekki fyrir alla.
Þeir sem svara meðferðinni á annað borð geta fundið fyrir jákvæðum breytingum í fyrstu eða síðustu viku meðferðarinnar. Algengast er þó að fólk finni raunverulegar breytingar eftir aðra viku meðferðarinnar.
Fyrstu jákvæðu áhrif meðferðarinnar geta virst smávægileg í fyrstu. Dæmi um það eru breytingar á geðslagi, svefni eða vitrænni getu og alls ekki víst að viðkomandi taki vel eftir þeim. Þá geta fyrstu merki þess að eitthvað sé að gerast þegar fólk segir „allt í einu var þvottakarfan tóm“ eða „ég hló upphátt“ eða „ég söng í bílnum“. Oftar en ekki verða breytingarnar áþreifanlegri þegar lengra líður á meðferðina.
Árangur TMS-meðferðar Heilaörvunarmiðstöðvar Heilsugæslunnar (HÖM) við meðferðarþráu þunglyndi er sambærilegur niðurstöðum erlendra rannsókna samkvæmt nýlegu BS-verkefni.
Árangur meðferðarinnar er mældur með þunglyndiskvörðum. Tæpur 1/3 finna einhverja bætingu (30-50 prósent bætingu á þunglyndiskvörðum) og rúmur 1/3 finnur töluverðan árangur af meðferðinni (yfir 50 prósent bætingu samkvæmt kvörðum). Af þeim sem finna einhvern eða töluverðan árangur eru 15-32% sem nær fullu sjúkdómshléi. Hins vegar er þriðjungur sem finnur engan árangur og meðferðin virðist ekki hjálpa. Ekki komu fram neinar alvarlegar aukaverkanir fram við meðferðina.
Frábendingar og aukaverkanir
Þótt TMS-meðferð sé almennt örugg er notast við sterkt segulsvið og því ákveðnar skilyrðislausar frábendingar. Ekki ætti að veita segulörvun ef skjólstæðingar eru með segulnæma málmhluti ígrædda í höfuð eða háls. Bæði geta þeir hlutir hitnað mikið og færst úr stað með tilheyrandi afleiðingum. Því er mjög mikilvægt við mat skjólstæðinga fyrir meðferð að spyrja hvort hlutum s.s. málmplötum, klemmum, rafskautum, dælum, kuðungsígræðslum eða gangráðum hafi verið komið fyrir í höfði eða hálsi við skurðaðgerð. Einnig ef þar kunna að leynast leifar málmflísa, örva eða byssukúlna.
Þú mátt ekki fá segulörvun ef... :
… þú ert með segulmagnaða hluti/brot í hálsi / höfði (almennt verða að vera a.m.k. 30 cm frá meðferðarspólunni að viðkomandi hlut)
… þú hefur sögu um krampa/flog
… þú ert þunguð
… þú hefur sögu um alvarlegan undirliggjandi sjúkdóm s.s. hjartasjúkdóm, ómeðhöndlaðan innankúpuþrýsting o.fl. Nánar verður spurt út í sjúkdómssögu í viðtali áður en meðferðin hefst.
Almennar frábendingar. Hér er átt við sjúkdóma eða einkenni sem aukið geta hættu á aukaverkunum eða dregið úr áhrifum meðferðarinnar:
Virk fíkniefnaneysla þ.m.t. áfengisfíkn
Geðhvarfasýki með geðrofseinkennum
Saga um heilaskaða eða heilablóðfall
Ákveðnir taugasjúkdómar
Já. Flestar þekktar aukaverkanir eru saklausar og auðvelt að vinna bót á. Alvarlegasta aukaverkun TMS meðferðar er flog/krampar en tíðni þeirrar aukaverkunar er þó mjög lág eða álíka eða lægri en tíðni krampa vegna töku hefðbundinna þunglyndislyfja.
Á meðal algengra aukaverkana eru:
Þreyta
Óþægindi í hársverði á meðferðarstað
Vægur höfuðverkur í kjölfar meðferðar (u.þ.b. 10%)
Skammvinn heyrnarskerðing (ráðlagt er að nota eyrnatappa meðan á meðferðinni stendur)
