Heilaörvunarmiðstöð
Þjónusta
Þjónustan ætluð einstaklingum sem þjást af miðlungs- til alvarlegu meðferðarþráu þunglyndi
Meðferðarþrátt þunglyndi er skilgreint þannig að einstaklingur hafi hlotið meðferð með að minnsta kosti tveimur þunglyndislyfjum í mismunandi lyfjaflokkum í að minnsta kosti í sex vikur á viðurkenndum skömmtum án nægjanlegs árangurs.
Geðlækar eða heimilislæknar visa til miðstöðvarinnar. Viðtal við geðlækni Heilaörvunarmiðstöðvar er ávallt undanfari TMS meðferðar.
Notendur greiða komugjald.
TMS er skammstöfun á því sem á ensku nefnist Transcranial Magnetic Stimulation sem þýða mætti sem segulörvun á heila.
TMS-meðferð krefst hvorki svæfingar, deyfingar né skurðaðgerðar. Skjólstæðingur er vakandi meðan á meðferð stendur og getur haldið sína leið að meðferð lokinni.
TMS-meðferð beinist að afmörkuðu svæði heilans og hefur ekki bein áhrif á önnur líffærakerfi.
TMS-meðferð byggir á endurtekningu og krefst þess að skjólstæðingar mæti í meðferð alla virka daga vikunnar í fjórar til sex vikur.
Á Heilaörvunarmiðstöð starfar fagfólk sem fengið hefur sérstaka þjálfun í meðferð með TMS-tækjum.
Aukaverkanir af TMS-meðferð eru bæði fáar og mildar þótt alvarlegri aukaverkanir þekkist. Þegar líður á meðferðina er líklegt að dragi úr þeim.
Algengustu aukaverkanir:
Höfuðverkur
Óþægindi í húð á meðferðarstað
Stingir, krampar eða kippir í andlitsvöðvum (aðeins á meðan meðferð stendur)
Sjaldgæfar en þekktar aukaverkanir:
Krampar
Oflæti, einkum hjá fólki með geðhvarfasýki
Heyrnarskerðing ef heyrnarhlífar eru ekki notaðar
Ráðfærðu þig við lækni eða hjúkrunarfræðing ef eitthvað af eftirtöldu á við:
Þú ert þunguð eða þungun er ráðgerð
Þú tekur inn lyf; bæði lyfseðilskyld og ólyfseðilskyld lyf, náttúrulyf, vítamín eða fæðubótarefni
Þú hefur sögu um krampa eða fjölskyldusögu um flogaveiki
Þú ert með ígrædd tæki eða hluti (sjá neðar)
Vegna sterks segulsviðs er meðferðin ekki ráðlögð þeim sem hafa ígrædda hluti eða tæki sem segulmagn virkar á.
Algerar frábendingar:
Hvers konar málmígræðslur eða segulmagnaðir hlutir í hálsi eða höfði
Hugsanlegar frábendingar:
Hvers konar ígrædd segulmögnuð tæki eða hlutir
Byssukúlur eða leyfar af þeim
Önnur málmtæki eða ígræddir hlutir í líkamanum
Yfirlæknir: Dagur Bjarnason geðlæknir
Fagstjóri: Jón Gauti Jónsson hjúkrunarfræðingur
