Greiningarteymin sinna nánari greiningu barna og ungmenna að 18 ára aldri ef sterkar vísbendingar eru um ADHD, einkenni einhverfurófs eða skyldar raskanir, svo sem tilfinningavanda, hegðunarerfiðleika og samskiptavanda.
Greiningarteymi yngri barna sinnir sex til tólf ára börnum og greiningarteymi eldri barna sinnir þrettán til átján ára börnum.
Skilyrði fyrir tilvísun í greiningarteymi er að frumgreining hafi bent til vanda sem veldur hömlun í daglegu lífi. Ef frumgreining gefur til kynna að vandinn sé vægur eða miðlungs alvarlegur skal fyrst láta reyna á úrræði í nærumhverfi. Ekki er gerð krafa á frumgreiningu þegar ungmenni er á aldrinum sextán til átján ára en þörf er á ítarlegri kortlagningu sem bendir til hamlandi vanda.
Miðað er við að greind sé almennt yfir viðmiðum um þroskahömlun. Ef helstu áhyggjur snúa að almennum þroska, málþroskaröskun eða sértækum námserfiðleikum heyrir málið undir skólaþjónustu en ekki Geðheilsumiðstöð barna. Ekki skal vísa börnum í nánari greiningu ef þau eru þegar á biðlista hjá öðrum greiningaraðilum.