Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Greining vegna taugaþroskafrávika

Greining - Hvað og til hvers?

Greining er ferli athugana, prófana og viðtala við barn/ungmenni og foreldra sjáraðila auk upplýsingaöflunar frá öðru fagfólki. Greining kortleggur styrkleika og veikleika barns í samhengi við umhverfisþætti.

Tilgangur greiningar er að svara hvort barn hefur frávik, hver þau eru og hve hamlandi og hvaða úrræði gætu gagnast.

Þverfaglegur hópur fagaðila kemur að greiningu á Geðheilsumiðstöð barna. Fyrstu formlegu athuganir eftir að grunur vaknar um frávik nefnast frumgreining. Nánari greining er þegar þörf er á víðtækari og sérhæfðari athugunum með tilliti til niðurstöðu frumgreiningar.