Fara beint í efnið
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Fólk 60 ára og eldra hvatt til að skoða kosti bólusetninga

10. júlí 2026

Einstaklingum 60 ára og eldri er ráðlagt að fá bólusetningar gegn ristli og lungnabólgu í nýjum leiðbeiningum embættis landlæknis. Bólusett er á heilsugæslustöðvum og til dæmis hægt að fá slíka bólusetningu samhliða inflúensubólusetningu í haust.

„Við hvetjum fólk til að kynna sér kosti þess að fá bólusetningu við þessum sjúkdómum. Það gæti hentað mörgum 60 ára og eldri að koma í inflúensubólusetningu á heilsugæslustöð í haust og fá þessar bólusetningar í sömu heimsókn,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Hægt er að kynna sér almennar leiðbeiningar um bólusetningar fullorðinna og forgangshópa á Ísland.is.

Kostnaður við bólusetningar

Þeir sem vilja fá bólusetningar gegn ristli og lungnabólgu þurfa að greiða sjálfir fyrir bóluefnin samkvæmt gjaldskrá heilsugæslunnar.

Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði við bólusetningu við lungnabólgu hjá forgangshópum sem tilgreindir eru í vinnureglu stofnunarinnar.

Bóluefni gegn ristli

  • Bóluefni gegn ristli er ætlað til að minnka líkur á ristilútbrotum og fylgikvillum þeirra hjá fólki sem hefur fengið hlaupabólu.

  • Bólusetning dregur úr hættu á ristli og þar með bráðum fylgikvillum sjúkdómsins.

  • Bóluefnið dregur einnig úr tíðni heilabilunar og virðast hægja á færniskerðingu í tengslum við heilabilun svo sem Alzheimer hjá bólusettum.

  • Gefnir eru tveir skammtar af bóluefninu með um það bil sex mánaða millibili.

Nánari upplýsingar um bólusetningar við ristli má finna á Ísland.is.

Bóluefni gegn lungnabólgu

  • Bóluefni gegn lungnabólgu (pneumókokkum) vinna gegn öndunarfærasýkingum á borð við skútabólgu (á ensku sinusitis), eyrnabólgu og lungnabólgu.

  • Slíkar öndunarfærasýkingar geta í sumum tilvikum valdið blóðsýkingum, heilahimnubólgu og öðrum lífshættulegum sýkingum.

  • Gefinn er einn skammtur af bóluefninu.

Nánari upplýsingar um bólusetningar við lungnabólgu (pneumókokkum) má finna á Ísland.is.