Fara beint í efnið
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir Forsíða
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir Forsíða

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir

Viðbygging hjúkrunarheimilisins við Skjólgarð á Höfn í Hornafirði

24. ágúst 2026

Viðbygging Hjúkrunarheimilisins við Skjólgarðá á Höfn í Hornafirði var vígð þann 14. ágúst síðastliðinn. Nýja viðbyggingin mun hýsa 20 hjúkrunarrými, kapellu og nýtt matreiðslueldhús fyrir sveitafélagið. Viðbyggingin er á einni hæð og sambyggð núverandi bygginu að sunnanverðu og er í sömu gólfhæð. Núverandi kjallari var einnig stækkaður undir viðbyggingu til suðurs. Form viðbyggingarinnar myndar innri skjólgarð sem verður aðgengilegur frá sameiginlegum rýmum sem snúa að honum. Búið er að byggja um 1.420 m2 sem inniheldur stækkun á kjallara og tengingu við eldra húsnæðið. Í lok júlí 2026 var viðbyggingin afhent til rekstraraðila ásamt eldhúsi og kjallara auk þess sem heimilisfólk flutti yfir í nýju viðbygginguna. Byggingin er samtengd eldri byggingu sem verður endurgerð á næstu mánuðum. Með nýju byggingunni verður mikil bæting á aðstöðu íbúa og er það framfaraskref í uppbyggingu hjúkrunarþjónustu á svæðinu.

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir

Hafa samband

Sími 590 9700

fsre@fsre.is

Afgreiðslu­tímar

  • Mánudaga - fimmtudaga
    9:00 - 15:00

  • Föstudaga
    9:00 - 14:00

Heim­il­is­fang

Borgartúni 26

105 Reykjavík

Kenni­tölur

  • FSRE kt.: 510391-2259

  • Ríkiseignir kt.: 690981-0259