Fyrsta skóflustungan tekin að nýju öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni
21. október 2026
Fyrsta skóflustungan að nýju öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni var tekin þriðjudaginn 20. október. Það voru Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra, Bragi Bjarnason bæjarstjóri í Árborg og Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri sem tóku skóflustunguna. Fyrir hönd FSRE voru viðstödd Óskar Jósefsson forstjóri og Nína Baldursdóttir verkefnastjóri.
