Deigla: Leitað að húsnæði fyrir sameiginlega starfsaðstöðu ríkisstofnana
2. nóvember 2026
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) stendur fyrir markaðskönnun vegna mögulegrar langtímaleigu á skrifstofuhúsnæði fyrir Deiglu á höfuðborgarsvæðinu. Deigla miðar að því að skapa nútímalegt, verkefnamiðað og sveigjanlegt vinnuumhverfi þar sem ríkisstofnanir geta samnýtt húsnæði og þjónustu.

Með sameiginlegri móttöku, mötuneyti og fundaaðstöðu gefst tækifæri til að nýta húsnæði betur og veita starfsfólki fjölbreyttari aðstöðu. Verkefnamiðað vinnuumhverfi býður upp á ólík rými fyrir einbeitingu, samstarf og fundi. Sveigjanlegt fyrirkomulag getur jafnframt auðveldað stofnunum að laga rýmisnotkun að breyttum verkefnum og starfsmannafjölda.
Leitað er að 5.000–10.000 m² húsnæði innan höfuðborgarsvæðisins, nálægt almenningssamgöngum og með góðu aðgengi fyrir alla. Til skoðunar er leiga til allt að 25 ára og æskilegt að húsnæðið verði afhent fullbúið, án lauss búnaðar, innan 12–24 mánaða frá undirritun samnings. Afhending í áföngum kemur til greina.
Markaðskönnunin er liður í valkostagreiningu sem miðar að því að draga úr húsnæðisnotkun ríkisins og ná fram sparnaði, um leið og vinnuaðstaða er bætt. Upplýsingar um framboð húsnæðis og mögulegan afhendingartíma nýtast við samanburð valkosta og ákvörðun um næstu skref.
Skilafrestur er kl. 13:00 þann 26. nóvember 2026. Upplýsingum skal skila í gegnum TendSign, merktum „6330309 – Deigla – Leiguhúsnæði“. Fyrirspurnir skulu berast í sama kerfi eigi síðar en 18. nóvember.