Samstarf faggildingarstofa á Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum
1. september 2026
Í ágúst hittust forstöðumenn faggildingarstofa Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á árangursríkum fundi hér á Íslandi.
Forstöðumenn faggildingarstofanna á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum komu hingað til lands í ágúst í tengslum við árlegan fund þeirra sem að þessu sinni var haldinn hérlendis. Fundurinn var árangursríkur að venju og voru lausar stundir vel nýttar skoðunarferða á perlum Íslands.
Ákveðið var að nýta tækifærið og bjóða fulltrúum frá atvinnuvegaráðuneytinu og Faggildingarráði ISAC til samtals við þau. Tilgangur Faggildingarráðs er að styðja við að ISAC uppfylli kröfur laga, reglugerða og alþjóðlegra staðla um aðkomu helstu hagsmunaaðila að faggildingarstarfseminni og að samræma skilning og túlkun á þeim kröfum sem samræmi er metið við. Á fundinum var áhugaverð notkun á faggildingu í ríkjunum kynnt og fóru fram góðar umræður um málefnið.
Notkun faggildingar hefur farið vaxandi í löggjöf Evrópusambandsins, m.a. á sviði stafrænnar þjónustu, sjálfbærni, umhverfismála og netöryggis. Á sama tíma eru framundan breytingar í aðferðafræði við faggildingarmat á næstu árum sem gæti aukið skilvirkni og lækkað kostnað. Með samstarfi þessara aðila verður hægara um vik fyrir ISAC að hafa áhrif á þróunina og bjóða nauðsynlega þjónustu.