Ný útgáfa af faggildingarstaðli ISO 17020 fyrir skoðunarstofur
1. júní 2026
Þriðja útgáfa staðalsins ISO/IEC 17020 tók gildi 2026-03 og tekur við af annarri útgáfu hans frá 2012.

Staðallinn lýsir kröfum sem gerðar eru varðandi framkvæmd skoðunarstofa á mati á samræmi. Staðallinn er á ensku en vonir standa til að hann verði þýddur yfir á íslensku. Helstu breytingar eru þessar:
Flokkun skoðunarstofa hvað varðar hlutleysi þeirra verða nú tveir, flokkur A og ekki-A (var áður A, B og C).
Bætt er við skilgreiningum á 'item' (því sem skoðað er) og 'client' (sá sem óskar eftir skoðun á því sem skoðað verður).
Ný grein er varðar stjórnun gagna og upplýsinga og ráðstafana við að greina og meta áhættur og tækifæri.
Sameiginlegir þættir í CASCO stöðlunum hafa verið innleiddir (ISO nefndarinnar um samræmismat).
Hugmyndafræði áhættumats lögð til grundvallar í þessari útgáfu.
Meiri sveigjanleiki en í fyrri útgáfu hvað varðar kröfur til ferla, verklagsreglna, skjalfestra upplýsinga og ábyrgðarhlutverka skoðunarstofu (og móðurfélags ef við á).
Frá og með október 2026 mun ISAC hefja úttektir eftir þessari nýju útgáfu staðalsins. Allar nýjar faggildingar fylgja nýjustu útgáfu og í kjölfarið þær stofur sem hafa faggildingu nú þegar.
Staðalinn má kaupa hjá Staðlaráði Íslands.