Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Faggilding - ISAC Forsíða
Faggilding - ISAC Forsíða

Faggilding - ISAC

Námskeið í kvörðun

7. janúar 2026

Mælióvissa: Grunnur, útreikningar og hagnýt beiting

ISAC, Faggildingarsvið Hugverkastofunnar, heldur námskeið þann 28. janúar 2026 í kvörðun - Mælióvissu.

Námskeiðið fjallar um mælióvissu, mikilvægi hennar og hvernig hún er reiknuð og metin í mælingum. Þátttakendur fá bæði fræðilegan grunn og hagnýta leiðsögn um hvernig mælióvissa er skilgreind, skráð og notuð við ákvarðanatöku. Markmiðið er að þátttakendur öðlist fullan skilning á því hvernig óvissuþættir eru greindir og hvernig mælióvissa er reiknuð út fyrir mæliaðferðir og mælitæki.

Námskeiðið er haldið fyrir sérfræðinga ISAC, en er opið öllum og hentar tækniaðilum, gæðastjórum og öllum þeim sem starfa við mælingar, prófanir, vottanir eða rannsóknir.

Roland Lundberg, sérfræðingur frá sænsku faggildingarstofunni Swedac mun leiða námskeiðið í fjarfundabúnaði. Námskeiðið verður kennt á ensku. Námsgögn verða bæði á íslensku og ensku.

Tímasetning: 28. janúar 2026, kl. 10:00 – 12:30

Staðsetning: Hjá ISAC. Katrínartún 4, 105 Reykjavík.

Verð: 29.000 kr.

Skráning fer fram hér.

Síðasti skráningardagur er 26. janúar 2026.

Faggilding - ISAC

ISAC

kt. 520319 2120

Heim­il­is­fang

Katrínartún 4
105 Reykjavík

Hafðu samband

Sími: 580 9400
Netfang: isac@isac.is

Kvart­anir og ábend­ingar

Smelltu hér